Þróunarverkefni
NES - samstarf Norðurlandaþjóðanna
Síðan XML kom út rétt fyrir aldamótin hefur verið unnið að samræmingu skeyta hjá UN/CEFACT, en einnig öðrum samtökum og stofnunum s.s. OASIS, W3C o.fl. OASIS hefur gefið út staðla fyrir 31 rafrænt skeyti. Staðall þessi nefnist UBL (Universal Business Language). Útgáfa 1.0 kom út árið 2004 og útgáfa 2.0 í nóvember 2006. Staðallinn er ókeypis.
Norðurlöndin hafa myndað með sér samstarfshóp er nefnist NES (North-European Subset). NES hópurinn hefur unnið ötullega að samræmingu rafrænna reikninga, pantana og vörulista. Segja má að þetta séu lykilskeytin í aðfangakeðjunni, en unnið er að fleiri skeytum.
Markmið NES hópsins er að koma á sameiginlegum vettvangi rafrænna viðskipta bæði innanlands og utan. Ætlunin er að löndin geti skiptst á rafrænum skjölum innan tíðar og jafnframt er unnið að sama markmiði innan Evrópu. Að þessu leyti er starfsemin ólík undirbúningi EDI notkunar hérlendis, því að EDIFACT staðlarnir voru lagaðir að íslenskum aðstæðum.
Samræmingarvinnan felst í því að taka saman allar kröfur og þarfir meðlimaþjóðanna fyrir rafræn skjöl og fella inn í svokallað NES verklag við UBL 2.0 staðalinn. Auk innihalds skeytanna. er unnið að verkferlunum í kringum skeytin, viðskiptatilvikin eru kortlögð. Dæmi: Hver eru viðbrögðin ef vara er ekki til, ef pöntun er hafnað, eða ef reikningi er hafnað. Tilvikin eru mörg og reynt að taka tillit til þeirra innan ákveðins ramma eða umgjarðar (profile). Þegar tveir aðilar sammælast um að fylgja ákveðinni umgjörð, þá samsvarar það samkomulagi um ákveðið verklag. Frekari lýsing eða samningur á að vera óþarfur.
NES hópurinn hefur samþykkt 8 umgjarðir fram að þessu. Þær eru:
1. vörulisti
2. uppfærsla vörulista
3. pöntun
4. reikningur
5. reikningur með kreditnótu
6. grunninnkaup, þ.e. pöntun, -svar, reikningur og kreditnóta
7. einföld innkaup, þ.e. sama og 6. að viðbættu kerfissvari
8. reikningur með svari og kreditnótu
Listinn á eftir að lengjast, en umgjörð nr. 4 er nú þegar komin í innleiðingu hér á landi og víðar. Það er gert í samræmi við i2010 markmið Evrópusambandsins um rafræna Evrópu. Vinnan flyst að hluta til CEN, Staðlastofnunar Evrópu, en með því móti fjölgar aðildarþjóðunum auk þess sem samningar við framkvæmdastjórn ESB eru í gangi. Vinnunefndin nefnist BII og skiptist í fjóra vinnuhópa. NES stýrihópurinn stendur fast að baki CEN/BII vinnuhópanna.
