Erlend samtök
NES (Northern European Subset)
NES er samstarfsvettvangur Norðurlandaþjóðanna á sviði rafrænna innkaupa. Skammstöfun er skýrð svo: "Northern European" því stofnendurnir voru Norðurlöndin fimm ásamt Bretlandi og "subset" því byggt er á hlutmengi UBL (Universal Business Language).
Markmið NES hópsins er að koma á fót sameiginlegum vettvangi fyrir rafræn innkaup, bæði innanlands og á milli landa. NES hópurinn samræmir ýmsar gerðir skjala fyrir rafræn innkaup. Vinna NES er framlag til þróunar alþjóðlegra staðla fyrir rafræn innkaup.
Árið 2007 gaf NES hópurinn út fyrstu útgáfu sína af skeytalýsingum, fyrir rafræna reikninga, pantanir og vörulista. Alls voru gefnar út 8 umgjarðir (profiles). ICEPRO gaf út handbók á íslensku í desember 2007. Nefndist hún "rafræn innkaup með XML".
Fjársýsla Ríkisins hefur innleitt umgjörð 4, rafræna reikninga hjá sér og getur tekið á móti og sent reikninga með NES/UBL verklaginu.
Vinna NES hópsins hefur nú flust til CEN/BII - vinnunefndar CEN, Staðlastofnunar Evrópu (sjá það). NES styður nú við þessa vinnu sem stýrihópur.
Fjársýsla Ríkisins og ICEPRO eru fulltrúar Íslands í NES stýrihópnum.
Heimildir:
www.nesubl.eu
www.fjs.is
www.icepro.is
