Erlend samtök

OASIS (Organization for the Advancement of Structured Information Standards)

OASIS samsteypan var stofnuð árið 1993 undir nafninu SGML (Standard General Markup Language). Stofnendur voru m.a. IBM, Microsoft, Oracle, SUN og fleiri.

SGML er svokallaði ívafsmál og er grunnur málanna HTML og XML. OASIS samtökin eru ekki rekin í hagnaðarskyni og afurðir þeirra eru ókeypis.

OASIS og UN/CEFACT hófu samvinnu við ebXML staðalinn árið 1999. Tilgangurinn var að búa til hóp "rafrænna skrifstofuskjala", sem leysa mundi EDIFACT staðalinn af hólmi. ebXML staðallinn leiddi af sér miklar væntingar á meðal EDIFACT notenda.

Árið 2001 hófst vinnan við UBL og kom fyrsta útgáfa UBL 1.0 út árið 2004. UBL er safn 31 skeyta sem öll byggjast á XML ívafsmálinu. Þarna er að finna öll helstu skeytin sem notuð eru við rafræn innkaup, sjá http://www.oasis-open.org/committees/ubl/faq.php.

UBL útgáfa 2.0 kom út í nóvember 2006. Nýja útgáfan sem hefur stærra gildissvið en sú eldri. Vinna NES hópsins byggist nú á UBL 2.0.

Heimild: www.oasis-open.org









Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica