Erlend samtök
UN/CEFACT (United Nations Centre for Trade Facilitation and Electronic Business)
UN/CEFACT er vettvangur viðskiptaliðkunar og samræmdra rafrænna viðskipta. UN/CEFACT styður verk sem miða að því að bæta verslun og viðskipti, jafnt hjá opinberum stofnunum sem einkafyrirtækjum. Lögð er áhersla á að liðka fyrir þjóðlegum og alþjóðlegum viðskiptum með einföldun og samræmingu vinnuferla.
Á vefsíðu UN/CEFACT er að finna:
- Tilmæli um liðkun viðskipta (Trade Facilitation Recommendations)
- Staðla fyrir rafræn viðskipti (Electronic Business Standards)
- Tæknilýsingar (Technical Specifications)
UN/CEFACT hefur m.a. gefið út:
- Sniðlykil fyrir viðskiptaskjöl (UN Layout Key for Trade Documents)
- UN/EDIFACT, alþjóðlegan staðal fyrir skjalaskipti milli tölva (SMT)
- Fjölmörg tilmæli um liðkun viðskipta
- Drög að næstu kynslóð viðskiptaliðkunar ásamt stöðlum og tækjum fyrir rafræn viðskipti.
UN/CEFACT heyrir undir UN/ECE - United Nations Economic Commission for Europe, efnahagsnefnd Sameinuðu Þjóðanna fyrir Evrópu. Til stuðnings UN/CEFACT starfar skrifstofa í tengslum við UN/ECE og á milli funda starfa eftirfarandi fastir hópar:
FMG - Forum Management Group
TBG - Trade and Business Processes Group
LG - Legal Group
TMG - Techniques and Methodologies Group
ICG - Information Content Group
ATG - Applied Technologies
TBG hóparnir kanna þarfir hinna ýmsu viðskiptasviða og stuðla að bestu starfsvenjum og alþjóðlegum verkferlum í viðskiptum. UMM - "UN/CEFACT Modelling Methodology" er notuð til stuðnings viðskiptaliðkun og rafrænum viðskiptalausnum. Hóparnir eru 19 talsins:
TBG1 - Supply Chain
TBG2 - Digital Paper
TBG3 - Transport & Logistics
TBG4 - Customs
TBG5 - Finance
TBG6 - Architecture, Engineering and Construction
TBG8 - Insurance
TBG9 - Travel, Tourism and Leisure
TBG10 - Healthcare
TBG12 - Accounting & Audit
TBG13 - Environmental
TBG14 - Business Process Analysis
TBG15 - International Trade Procedures
TBG16 - Entry Points
TBG17 - Core Component Harmonization
TBG18 - Agriculture
TBG19 - e-Government
Árið 1974 gaf UN/CEFACT út tilmæli nr. 4 um stofnun nefnda til að örva innleiðingu alþjóðlegra viðskiptaferla. ICEPRO er ein af rúmlega 50 PRO-nefndum UN/CEFACT og hefur unnið með þeim í 20 ár að útgáfu EDIFACT raunstaðla fyrir rafræn skjöl. ICEPRO hefur gefið út 27 íslensk EDIFACT skjöl fyrir rafræn viðskipti á Íslandi.
Skeyti Merking íslenskt heiti
AUTHOR Authorisation Heimild
BANSTA Banking Status Svarskeyti í greiðslumiðlun
CREADV Credit Advice Tilkynning um innlegg
CUSCAR Customs Cargo Report Farmskrá(?)
CUSDEC Customs Declaration Tollskýrsla
CUSRES Customs Response Tollsvar
DEBADV Debit Advice Tilkynning um úttekt
DESADV Despatch Advice Afgreiðsluseðill/Vörufylgibréf
DIRDEB Direct Debit Beingreiðslur
FINSTA Financial Status Reikningsyfirlit
IFTMAN Arrival Notice Komutilkynning
IFTMCS Instruction Contract Status Svar við fraktbókun
IFTMIN Instruction Fraktbókun
INVOIC Invoice Reikningur
MEDPRE Medical Prescription Lyfseðill
ORDCHG Order change Breyting á pöntun
ORDERS Purchase Order Pöntun
ORDRSP Order Response Svar við pöntun
PARTIN Party Information Upplýsingar um aðila
PAYEXT Extended Payment Order Fjölgreiðslubeiðni
PAYMUL Multiple Payment Order Fjölgreiðslubeiðni
PAYORD Payment Order Greiðslubeiðni
PRICAT Price Catalog Verð- og vörulisti
REMADV Remittance Advice Greiðsluupplýsingar
RETANN Returns Announcement Vöruskil
SLSFCT Sales Forecast Söluspá
SLSRPT Sales Report Söluskýrsla
UN/CEFACT fulltrúar hinna ýmsu landa nefnast HoD (Head of Delegation).
Fulltrúi Íslands er Karl F. Garðarsson.
Heimild: www.unece.org/cefact
