Erlend samtök

CEN (Comité Européen de Normalisation)

CEN, Staðlastofnun Evrópu, nefnist á ensku: „European Committee for Standardization“. CEN greiðir fyrir viðskiptum með því að fjarlægja viðskiptahindranir evrópskra fyrirtækja og neytenda. CEN stuðlar að þróun evrópskra staðla og annarra tæknilýsinga.

Aðlidarlönd ESB og EFTA vinna saman að staðlagerð þessari, alls 30 þjóðir. Á vettvangi CEN vinna um 60.000 sérfræðingar auk samtaka viðskipta og neytenda. Áhrif CEN ná til rúmlega 480 milljón manna.

CEN staðlar hafa sterka stöðu á meðal þátttökulandanna, en evrópustaðlar verða sífellt mikilvægari liður í því laga- og reglugerðarumhverfi sem við búum við. Geti löndin 30 sameinast um einn staðal í stað hinna ýmsu misvísandi staðla hvers lands, þá er hægt að koma vöru á markað með margfalt lægri tilkostnaði. Evrópustaðlar efla innri markað Evrópu og styrkja álfuna á heimsvísu.

Staðlaráð Íslands er aðili að CEN fyrir Íslands hönd. 

Heimild: www.cen.eu







Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica