Erlend samtök

CEN-CENELEC ICT Forum

CEN-CENELEC ICT Forum er samstarfsvettvangur evrópsku staðlasamtakanna CEN og rafstaðlasamtakanna CENELEC á sviði upplýsingatækni. Aðild að vettvangnum eiga 30 landsstaðlasamtök í Evrópu, þ.e. þau sem eru innan evrópska efnahagssvæðisins (EES), samtök neytenda í Evrópu (ANEC), evrósk samtök lítilla og meðalstórra fyrirtækja (NORMAPME), staðlasamtök Evrópu á fjarskiptasviði (ETSI) og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins.

Vettvangurinn er sá staður þar sem litið er yfir þróun stöðlunar á upplýsingatæknisviðiar í Evrópu, ný verkefni rædd og áherslur ákveðnar.

Undir merkjum CEN-CENELEC ICT Forum starfa sérfræðingar að sammælum og stöðlun í undirnefndum, tækninefndum og vinnuhópum og gefa út staðla, tækniforskriftir og sammæli vinnunefnda (CWA , CEN Workshop Agreement).

CEN-CENELEC ICT Forum heyrir undir CEN BT (Technical Board) og formaður þess er Rúnar Már Sverrisson, formaður FUT. Guðbjörg Björnsdóttir er fulltrúi Íslands í CEN-CENELEC ICT Forum fyrir hönd Staðlaráðs Íslands.

Heimild: http://www.cen.eu/cenorm/sectors/sectors/isss/about_isss/index.asp









Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica