Erlend samtök
CEN/BII
Árið 2007 hóf störf vinnunefnd er nefnist CEN/BII (Business Interoperability Interfaces) sem mætti nefna "samstarfsskil viðskipta". Markmið vinnunefndarinnar er að útvega þær tæknilýsingar sem þarf til aukinnar samstarfshæfni í rafrænni verslun innan Evrópu. Upphaf vinnunefndarinnar var aðlögun NES og CODICE á UBL 2.0 skjölum að rafrænum innkaupum.
Áhersla er lögð á að samlagast vinnu UN/CEFACT til að tryggja samstarfshæfni á heimsvísu. Þarfalýsingar og öll vinna hópsins er framlag CEN/BII til UN/CEFACT.
Þáttur í vinnunni er að stýra frumverkefnum (pilots) við að innleiða tæknilýsingarnar til að auðvelda notendum upptöku og innleiðingu tækniforskrifta og staðla.
Vinnuhópar CEN/BII vinnunefndarinnar eru fjórir:
1. Skilgreining innihalds skeyta og viðskiptaferlar
2. Samruni UBL tæknilýsinga við lýsingar UN/CEFACT
3. Verkfærakassi sem auðveldar notendum innleiðingu lýsinganna
4. Stuðningur við frumkeyrslu
Um miðjan júlí 2009 komu út drög að tækniforskrift (CWA) hópsins. Umsagnarfrestur var til 2. sept., en áætluð verklok þess verkhluta eru í nóvember 2009.
Heimild: http://www.ds.dk/en-GB/Sectors/ICT/Bii/Sider/default.aspx
