Erlend samtök

PEPPOL (Pan-European Public eProcurement On-Line)

Markmið PEPPOL er að koma á fót samræmdum rafrænum innkaupum á meðal Evrópuþjóða. Sérhvert fyrirtæki í Evrópu - jafnt stórt sem lítið - á að geta átt rafræn samskipti við evrópskar stofnanir - í gegnum samfellt rafrænt innkaupaferli.

PEPPOL er stutt af tveim stuðningsáætlunum framkvæmdastjórnar ESB:
CIP - Competitiveness & Innovation Framework Programme og
ICT - Information and Communications Technology Policy Support Programme

Með vinnu PEPPOL verður til alhliða umhverfi byggt á þjóðlegum kerfum og innviðum, sem styðja rafræna innkaupakeðju frá upphafi til enda. Þannig eiga lítil sem stór fyrirtæki í Evrópu að geta gert rafræn innkaup hjá hvaða stjórnsýslustofnun sem er innan Evrópu.

Frumverkefni PEPPOL munu styðja við hvers konar fjármálaumsýslu á Evrópusvæðinu. Hægt verður að svara öllum útgefnum útboðum rafrænt og stýra öllu innkaupaferlinu frá innviðum einnar þjóðar til annarrar. Jafnframt leggur PEPPOL áherslu á virkjun og þátttöku lítilla og meðalstórra (SME) fyrirtækja í opinberum innkaupum.

Af vefsíðu PEPPOL:

The Manchester ministerial declaration of 24 November 2005 defines the target:

“By 2010 all public administrations across Europe will have the capability of carrying out 100 % of their procurement electronically and at least 50 % of public procurement above the EU public procurement threshold will be carried out electronically.”

The PEPPOL project is strongly supporting this target.

(http://www.peppol.eu/About_PEPPOL/starting-point)

Verkefnin "Work Packages" (WP) eru 8 talsins:

1. rafræn undirskrift - eSignature
2. fyrirtækjaskrá - Virtual Company Dossier
3. rafrænn vörulisti - eCatalogue
4. rafræn pöntun - eOrdering
5. rafrænn reikningur - eInvoicing
6. verkstjórn - Project Management
7. samstaða og vitundarvakning - Consensus and awareness building
8. högun lausna, hönnun og fullgilding - Solutions architecture, design and validation

Nánar um verkefnin: http://www.peppol.eu/Work_packages

Heimild: www.peppol.eu









Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica