Erlend samtök

EEI (European Electronic Invoicing) Expert Group

Framkvæmdastjórn EB ákvað að stofna sérfræðingahóp um rafræna reikninga með umboð til að ákveða aðgerðarramma fyrir árslok 2009. Þess er vænst að hópurinn geri grein fyrir öllum hindrunum (í vegi fyrir rafrænum reikningum innan Evrópu) og komi með tillögur um hvernig megi ryðja þeim úr vegi.

31 sérfræðingur var valinn til þátttöku í sérfræðingahópnum, sem hóf störf 26. febrúar 2008 og hittist að jafnaði á tveggja mánaða fresti. Hópurinn skiptist í þrennt eftir viðfangsefnum:

1. lagarammi
2. viðskiptaferlar
3. net og staðlar

Hópurinn gaf út áfangaskýrslu 27. janúar 2009 og lokaskýrslu er að vænta í árslok 2009.

Heimild: ec.europa.eu/enterprise/ict/policy/einvoicing/einvoicing_en.htm









Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica