Erlend samtök
SEPA (Single Euro Payment Area)
SEPA sameiginlegu greiðslusvæði Evrópu er ætlað að koma á skjótum og öruggum greiðslum hvarvetna í Evrópu. Jafnt utanlands sem innan má nota debetkort til að inna af hendi greiðslu í evrum.
Verkefni þetta fer fram á vegum bankageira ESB og EFTA landanna, sem stofnuðu EPC (European Payments Council) árið 2002 vegna þessa. Markmiðið er eitt sameiginlegt greiðslusvæði um alla Evrópu árið 2010. Verkið er stutt dyggilega af Seðlabanka Evrópu (ECB) og framkvæmdastjórn Evrópubandalagsins (EC).
Heimild: ec.europa.eu/internal_market/payments/sepa/
Sjá einnig: www.fgm.is/sida.aspx?numer=26
Rétt er að geta þess að í Evrópu er algengt að það taki tvo vinnudaga að flytja fé á milli banka. Hérlendis gerist það samdægurs. Ávinningur Íslendinga af SEPA yrði því einkum í milliríkjaviðskiptum.
