Staðlaráð Íslands

Staðlaráð Íslands

Staðlaráð Íslands - Skúlatúni 2 - 105 Reykjavík - 5207150 - www.stadlar.is

Yfirlýsing FUT um stuðning við BII

FUT, fagstaðlaráð Staðlaráðs í upplýsingatækni, hefur lýst yfir stuðningi við skilgreiningum á tæknilegri grunngerð rafrænna viðskipta sem unnið er að í vinnuhópi evrópsku staðlasamtakanna CEN. Vinnuhópurinn gengur undir heitinu „Business Interoperability Interfaces on public procurement in Europe“, CEN/ISSS WS BII. FUT hyggst, í samstarfi við Icepro, stuðla að innleiðingu þeirra afurða vinnuhópsins sem falla að íslensku viðskiptalífi, nú fyrst með útgáfu tækniforskriftar fyrir rafrænan reikning á grunni skilgreiningar „Profile 4 - Basic Invoice Only“.

 

Staðlaráð Íslands er samstarfsráð þeirra sem hagsmuna hafa að gæta af stöðlun og er aðild að ráðinu öllum heimil. Staðlaráð starfar á grundvelli laga um staðla og Staðlaráð Íslands nr. 36/2003 og starfsreglna sem staðfestar eru af iðnaðarráðherra. Í 2. grein starfsreglna Staðlaráðs er nánar mælt fyrir um hlutverk Staðlaráðs og verkefni. Þar kemur fram að verkefni ráðsins nái m.a. til þess að stuðla að framgangi stöðlunar á Íslandi á þann hátt sem gagnlegt þykir, m.a. með fræðslu, upplýsingum, aðild að starfsemi sem tengist stöðlun og þjónustu á sviðum sem óskað kann að verða eftir og stjórn Staðlaráðs samþykkir.

Staðlaráði er ætlað að starfrækja miðstöð stöðlunarstarfs hérlendis, hvetja til hvers kyns samstarfs um stöðlun og vera fulltrúi fyrir Íslands hönd á erlendum vettvangi á sviði stöðlunar.

Samkvæmt 6. grein starfsreglna Staðlaráðs eru stofnanir þess m.a. fagstaðlaráð og tækninefndir. Einnig getur stjórn sett á stofn fagstjórnir á tilteknum sviðum og starfshópa eða nefndir um afmörkuð verkefni, enda starfrækt í samvinnu við hlutaðeigandi hagsmunaaðila.

Hlutverk fagstaðlaráða er að samræma og hafa frumkvæði að stöðlunarvinnu á sínu sviði. Rétt til þátttöku hafa allir þeir sem hagsmuna eiga að gæta af stöðlun og samræmingu á því sviði. Starfsemi fagstaðlaráðsins er m.a. fólgin í samræmingu, frumkvæði og umsjón með stöðlunarvinnu og öðrum verkefnum á fagsviðinu ásamt þátttöku í innlendu og erlendu samstarfi. Fagstaðlaráðið leggur fram tillögur til stjórnar Staðlaráðs um stofnun nefnda á sínu sviði, skipan þeirra og störf, eftir því sem áhugi er fyrir meðal hagsmunaaðila.

 Staðlaráð er fulltrúi Íslands í alþjóðlegu staðlasamtökunum ISO og IEC og evrópsku staðlasamtökunum CEN, CENELEC og ETSI og þátttakandi í norrænu stöðlunarsamstarfi INSTA.

FUT, fagstaðlaráð í upplýsingatækni

FUT, fagstaðlaráð í upplýsingatækni FUT, er samstarfsvettvangur hagsmunaaðila á sviði upplýsingatækni. Vettvangurinn er opinn öllum sem hafa áhuga á samræmingu í uppbyggingu og/eða nýtingu upplýsingatækni, með formlegum eða óformlegum hætti.

FUT hefur lýst yfir stuðningi við skilgreiningum á tæknilegri grunngerð rafrænna viðskipta sem unnið er að í vinnuhópi evrópsku staðlasamtakanna CEN. Vinnuhópurinn gengur undir heitinu „Business Interoperability Interfaces on public procurement in Europe“, CEN/ISSS WS BII. FUT hyggst, í samstarfi við Icepro, stuðla að innleiðingu þeirra afurða vinnuhópsins sem falla að íslensku viðskiptalífi, nú fyrst með útgáfu tækniforskriftar fyrir rafrænan reikning á grunni skilgreiningar „Profile 4 - Basic Invoice Only“.

Stuðningur framkvæmdaráðs FUT byggir á þeirri staðreynd að innan Evrópu er frumkvæði BII hópsins, sem að grunni til byggir á vinnu Northern European Subset, NES, leiðandi í mótun skilgreininga á grunnþáttum rafrænna opinberra innkaupa. Á fundi fulltrúa Evrópusambandsins, CEN, UN/CEFACT og OASIS 15. október 2008 kom fram að starf BII hópsins nýtur alþjóðlegrar viðurkenningar og er séð sem mikilvægt framlag til þeirrar vinnu sem á sér stað innan UN/CEFACT.

Framkvæmdaráð FUT hvetur jafnframt hagsmunaaðila til þátttöku í evrópska PEPPOL tilraunaverkefninu, eftir því sem kostur er. Verkefnið, sem er styrkt af ICT Policy Support Programme (ICT PSP) verkefnaáætlun Evrópusambandsins, snýst um þróa rafræn opinber innkaup þannig að þau megi verða hnökralaus og auðveld í framkvæmd fyrir lítil sem stór fyrirtæki sem bjóða opinberum aðilum vörur sínar og þjónustu. PEPPOL verkefnið hyggst nýta sér tæknilegar skilgreiningar vinnuhóps CEN til uppbyggingar sinnar grunngerðar.







Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica