Um þennan vef
UT-vefurinn | Vefur um upplýsingatækni
Þeir sem stýra og vinna við upplýsingatækni í opinberum stofnunum eru oftast störfum hlaðnir. Mikilvægt er að slíkir starfsmenn fái þann stuðning sem hægt er að veita, t.d. með því að allt efni er varðar upplýsingatækni á vegum hins opinbera sé aðgengilegt og þeir geti gengið að upplýsingum er varða dagleg störf, fyrirmyndir og einstök málefni sem efst eru á baugi hverju sinni. Einnig er æskilegt að starfsmenn hafi aðgang að vettvangi þar sem þeir geta leitað ráða og spurst fyrir um tiltekin álitamál.
Til þess að koma til móts við þessar þarfir er þessum vef komið á laggirnar. Telja má víst að UT-vefurinn nýtist ýmsum öðrum en ríkisstofnunum svo sem sveitarfélögum, fyrirtækjum og almenningi í landinu.
Markmið:
- Greiða fyrir þróun rafrænnar stjórnsýslu
- Auðvelda aðgengi að upplýsingum um upplýsingatækni
- Vera vettvangur og bakland sértækra málefna sem efst eru á baugi hverju sinni, sbr. utdagur, rafræn viðskipti, öryggismál, opinn hugbúnað, aðgengismál o.s.frv.
- Miðla og safna upplýsingum um upplýsingatækni, t.d. varðandi rekstur, fyrirmyndir og hugmyndir
- Vera hugmyndabanki og vettvangur umræðna um upplýsingatækni
- Veita fræðslu um ýmislegt sem varðar upplýsingasamfélagið almennt, t.d. stefnu ríkistjórnarinnar, lög og reglugerðir, tölfræði, verkefni sem eru í vinnslu o.s.frv
- Vera vettvangur þar sem hagsmunaaðilar og félagasamtök geta komið á framfæri upplýsingum
Markhópur:
- Þeir sem vinna með upplýsingatækni í opinberum stofnunum (ríki og sveitarfélög), almennir stjórnendur, fagmenn og þeir sem stýra upplýsingatæknimálum
- Sérstakur markhópur eru stjórnendur og starfsmenn lítilla stofnana.
- Almenningur og aðrir sem nýta sér upplýsingatækni.
UT-vefurinn er í umsjá forsætisráðuneytisins og á ábyrgð þess.
Sjá einnig:
