Verkefnisstjórn um upplýsingasamfélagið hefur það hlutverk að fylgja eftir stefnu ríkisstjórnarinnar í málefnum upplýsingasamfélagsins. Verkefnisstjórnin er skipuð fulltrúum fjármálaráðuneytis, velferðarráðuneytis, mennta- og menningarmálaráðuneytis, auk fulltrúa innanríkisráðuneytis sem jafnframt er formaður verkefnisstjórnarinnar.
Helstu verkefni verkefnisstjórnar eru eftirfarandi:
- Að fylgja eftir heildarstefnu ríkisstjórnarinnar um málefni upplýsingasamfélagsins.
- Að stuðla að því að íslensk stjórnvöld, atvinnulíf og almenningur hagnýti sér kosti sem leiða af örri framþróun á sviði upplýsinga- og fjarskiptatækni.
- Að vera vettvangur fyrir og leiða samstarf ráðuneytanna á sviði upplýsinga- og fjarskiptatækni.
- Að leita eftir samstarfi við aðila utan ríkiskerfisins, einkum sveitarfélög, fyrirtæki og félagasamtök, um málefni upplýsingasamfélagsins.
- Að fylgja eftir sérstökum áherslum ríkisstjórnar á þessu sviði.
- Að vera ráðgefandi fyrir ríkisstjórn um fjárveitingar til þessara mála.
Verkefnisstjórnin mun jafnframt fyrir hönd íslenskra stjórnvalda taka þátt í ýmsu erlendu samstarfi varðandi málefni upplýsingasamfélagsins.
Einnig er starfandi samráðsnefnd sem er vettvangur samstarfs ráðuneyta á sviði upplýsinga- og fjarskiptatækni. Samráðsnefndin vinnur með verkefnisstjórn og er skipuð fulltrúum allra ráðuneyta sem eru tengiliðir verkefnisstjórnar við ráðuneytin.
