- Auðlindir í allra þágu -
Stefnan um upplýsingasamfélagið 2004-2007
Einstaklingurinn, tækifæri hans og velferð í samfélaginu eru leiðarljós stefnu ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið sem unnið er eftir til ársins 2008. Yfirskrift stefnunnar, Auðlindir í allra þágu, vísar til þess að upplýsingatækni veiti einstaklingum, atvinnulífi og opinberri þjónustu tækifæri til að nýta sér þær auðlindir sem felast í upplýsingum, þekkingu og nýsköpun.
Upplýsingatækni ber fyrst og fremst að líta á sem verkfæri sem nýta má til að ná auknum lífsgæðum fyrir alla landsmenn og alla samfélagshópa um landið allt. Stefnan er reist á fjórum meginstoðum:
- að nýta tækifærin
- að vinna að breytingum af ábyrgð
- að tryggja öryggi
- að auka lífsgæði
Í stefnunni eru skilgreind 64 verkefni eða verkefnasvið og tilgreint hver ber ábyrgð á að hrinda þeim í framkvæmd.
Starfandi eru margir hópar sem falin hafa verið afmörkuð verkefni varðandi framkvæmd stefnunnar. Ábyrgð á framkvæmd stefnunnar í heild er hjá forsætisráðuneyti sem falið hefur Verkefnisstjórn um upplýsingasamfélagið umsjón með því verkefni. Einnig hefur ráðuneytið skipað Verkefnisstjórn um rafræna stjórnsýslu sem gegnir lykilhlutverki við innleiðingu tækninnar í þjónustu hins opinbera. Formlegt samstarf er milli allra ráðuneyta varðandi upplýsingatæknimál og starfandi er samráðshópur með fulltrúum frá ríki, sveitarfélögum, atvinnulífi og ýmsum félagasamtökum.
- Auðlindir í allra þágu - Stefna ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið 2004-2007 (DOC - 86Kb)
- Auðlindir í allra þágu - Stefna ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið 2004 - 2007 (PDF - 1.1Mb)
