Verkefnisstjórn um rafræna stjórnsýslu

Forsætisráðuneyti hefur skipað verkefnisstjórn um rafræna stjórnsýslu. Skipunin er í samræmi við stefnu ríkisstjórnar Íslands frá febrúar 2004 sem ber yfirskriftina: Auðlindir í allra þágu - Stefna ríkisstjórnarinnar um upplýsingsamfélagið 2004-2007. Þar er lögð rík áhersla á verkefni á sviði rafrænnar stjórnsýslu en um þau verkefni segir meðal annars:

"Hið opinbera, bæði ríki og sveitarfélög leggi áherslu á rafræn viðskipti og rafræna stjórnsýslu. Í því felst m.a. að opinberar stofnanir veiti rafræna þjónustu hvarvetna þar sem hún leiðir til hagræðingar og bættrar þjónustu við almenning og atvinnulíf. Áhersla verði lögð á að hægt verði að nýta tiltölulega einfaldan tæknibúnað í samskiptum við stjórnvöld og að nýir samskiptamiðlar verði nýttir. Ávallt þarf þó að vera fyrir hendi val þannig að þeir sem ekki geta notað tæknina geti notið hefðbundinnar þjónustu áfram. Á vegum forsætisráðuneytis verði sett upp sérstök verkefnisstjórn um rafræna stjórnsýslu sem hafi það verkefni árin 2004-2007 að aðstoða og hvetja opinberar stofnanir til að vinna að þessu meginmarkmiði."

Helstu verkefni verkefnisstjórnar um rafræna stjórnsýslu verða að:

  • hafa frumkvæði um, skilgreina og hrinda í framkvæmd verkefnum á sviði rafrænnar stjórnsýslu og hafa samráð við ráðuneyti, ríkisstofnanir og hagsmunaaðila utan stjórnsýslunnar, atvinnulíf og sveitarfélög eins og við á
  • móta tillögur og skipuleggja verkefnið um rafræna þjónustuveitu
  • vinna að stöðlun og samræmingu í rafrænum samskiptum stjórnsýslunnar
  • verða tengiliður stjórnsýslunnar við verkefnið um tilraunasamfélagið
  • gera tillögur um stofnun vinnuhópa um afmörkuð viðfangsefni
  • gera tillögur um endurskoðun laga og reglugerða þar sem eru hindranir fyrir rafrænum viðskiptum í lögum, reglugerðum og starfsháttum opinberra aðila

Verkefnisstjórnin er skipuð fulltrúum tilnefndum af fjármálaráðuneyti, félagsmálaráðuneyti, Ríkisskattstjóra og Tryggingarstofnun ríkisins auk fulltrúa forsætisráðuneytis sem jafnframt er formaður.

Eftirtaldir aðilar sitja í verkefnisstjórn um rafræna stjórnsýslu:

  • Halla Björg Baldursdóttir, forsætisráðuneyti, formaður
    sími: 545-8470, tölvupóstfang, halla.bjorg.baldursdottir hjá for.stjr.is
  • Bragi Leifur Hauksson, Tryggingastofnun ríkisins, tölvupóstfang: bragi.hauksson hjá tr.is
  • Haraldur Bjarnason, fjármálaráðuneyti
    sími: 545-9150, tölvupóstfang: haraldur.bjarnason hjá fjr.stjr.is
  • Jónas Ingi Pétursson, ríkislögreglustjóra, tölvupóstfang: jonas.petursson hjá rls.is
  • Ævar Ísberg, Ríkisskattstjóra, tölvupóstfang: aevar.isberg hjá rsk.is 

        

Varamenn eru:

  • Guðbjörg Sigurðardóttir, forsætisráðuneyti
    sími: 545-8470, tölvupóstfang: gudbjorg.sigurdardottir hjá for.stjr.is
  • Ásdís Ingibjargardóttir, dómsmála og mannréttindaráðuneyti
    sími: 545-9080, tölvupóstfang: asdis.ingibjargardottir hjá dkm.stjr.is
  • Jens Þór Svansson, Ríkisskattstjóra
    sími: 563-1239, tölvupóstfang: jens.svansson hjá rsk.is
  • Hermann Ólason, Tryggingastofnun ríkisins
    sími: 560-4468, tölvupóstfang: hermann.olason hjá tr.is
  • Ásdís Káradóttir, fjármálaráðuneyti
    sími: 545-9221, tölvupóstfang: asdis.karadottir hjá fjr.stjr.is

Um rafræna stjórnsýslu, sjá hér







Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica