Útgáfa

Stofnun upplýsingatæknimiðstöðvar undirbúin - 20/5/10

Ríkisstjórnin hefur samþykkt að hefja undirbúning fyrir stofnun upplýsingatæknimiðstöðvar. Sett verður á fót framkvæmdanefnd sem mun útfæra tillögur um skipulag og starfsemi miðstöðvarinnar og móta henni fjárhagsáætlun.

Lesa meira
 

Ráðherrayfirlýsing um rafræna stjórnsýslu - 19/5/10

Ráðherrar aðildarríkja Evrópusambandsins, inngönguríkja, umsóknarríkja og EFTA-ríkja samþykktu á fundi í Malmö þann 18. nóvember 2009 yfirlýsingu um stefnu í rafrænni stjórnsýslu fram til ársins 2015. Fundurinn var haldinn í tengslum við ráðherraráðstefnu um rafræna stjórnsýslu sem Svíar stóðu fyrir í tengslum við formennsku sína í ráðherraráði ESB.

Lesa meira
 

Leiðbeiningarrit um frjálsan hugbúnað - 5/3/10

Ríkisendurskoðun hefur gefið út rit sem ætlað er að fræða starfsmenn ríkistofnana um möguleika svokallaðs frjáls hugbúnaðar og leiðbeina um val á slíkum hugbúnaði. Í ritinu kemur fram að kostnaður íslenska ríkisins vegna kaupa á hugbúnaði hafi numið rúmlega 7,5 ma.kr. á tímabilinu 2006 til 2008.

Lesa meira
 

Hvað er spunnið í opinbera vefi 2009? - 22/12/09

Niðurstöður þriðju könnunar á opinberum vefjum liggur fyrir. Könnunin var sem fyrr tvíþætt. Annars vegar voru vefirnir metnir af sérfræðingum samkvæmt gátlistum um innihald, nytsemi, aðgengi og þjónustu. Hins vegar svöruðu forsvarsmenn vefjanna spurningalista. Metnir voru 274 vefir ríkisstofnana, ráðuneyta og sveitarfélaga. Svarhlutfall var um 90%.

Lesa meira
 

Úttekt á OpenOffice.org skrifstofuvöndlinum - 10/9/09

Ríkisskattstjóri hefur gert úttekt á frjálsum og opnum skrifstofuhugbúnaði fyrir forsætisráðuneytið. Verkefni RSK fólst annars vegar í að prófa helstu kerfishluta OpenOffice.org og hins vegar í að prófa samskipti innanhússkerfa RSK við hugbúnaðinn. Lesa meira
 

Arðsemi rafrænnar stjórnsýslu metin með staðalkostnaðarlíkaninu - 10/9/09

Pricewaterhouse Coopers hefur lokið við verkefni fyrir forsætisráðuneyti sem snérist um að leggja mat á arðsemi rafrænnar stjórnsýslu. Verkefni PwC fólst í að nota staðalkostnaðarlíkanið til að mæla arðsemi innleiðingar rafrænna stjórnsýslukerfa og einföldunaraðgerða fyrir notendur opinberrar þjónustu. Lesa meira
 

Rafræn eyðublöð og XML skema - 12/6/09

Út er komin skýrsla á vegum forsætisráðuneytisins þar sem fjallað er um gerð XML skema fyrir rafræn samskipti m.a. með tilliti til rafrænna eyðublaða. Í hennni eru lögð fram frumgerð að tilraunaútgáfu á stöðlungi1 sem lýst er með XML skema. Lesa meira
 

Verkfærakista og vefhandbók - 20/5/09

Í tengslum við UT-daginn 2009 voru gefnir út tveir einblöðungar. Annars vegar til að vekja athygli á verkfærakistunni á island.is og hins vegar til að kynna vefhandbókina á ut.is. Lesa meira
 

Nýtt fræðsluefni hér á vefnum - 3/4/09

Tvær nýjar „handbækur“ um upplýsingatækni eru nú aðgengilegar hér á UT-vefnum. Vefhandbók um opinbera vefi er leiðarvísir um uppsetningu og viðhald vefja. Stafrænt frelsi er fræðsluefni um opinn og frjálsan hugbúnað, opna staðla og frjálst samfélag. Lesa meira
 

Staðlar og góðar fyrirmyndir í rafrænni stjórnsýslu - 9/9/08

Skýrsla Capacent er unnin fyrir forsætisráðuneytið og verkefnisstjórn um rafræna stjórnsýslu. Í henni er lýst framkvæmd og niðurstöðum úttektar ráðgjafa Capacent á stöðlum og góðum fyrirmyndum í rafrænni stjórnsýslu og dregin upp hugmynd að verkefnaramma. Lesa meira
 
Iceland the e-Nation - Icelandic Government Policy on the Information Society 2008-2012

Netríkið Ísland á ensku - 1/7/08

Stefna ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið er komin út á ensku. Heiti hennar er Iceland the e-Nation - Icelandic Government Policy on the Information Society 2008-2012. Lesa meira
 
Geir H. Haarde forsætisráðherra kynnir UT-stefnu

Stefna ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið - 7/5/08

Ríkisstjórnin gaf í dag út nýja stefnu um upplýsingasamfélagið og var hún kynnt í fyrsta sinn á UT-ráðstefnunni sem haldin var í tilefni dags upplýsingatækninnar.

Lesa meira
 

Stefna um frjálsan og opinn hugbúnað - 11/3/08

Verkefnisstjórn um rafræna stjórnsýslu í forsætisráðuneyti vann að mótun stefnu um frjálsan og opinn hugbúnað. Stuðst var meðal annars við skýrslu um opinn hugbúnað sem gerð var fyrir forsætisráðuneytið 2005, stefnur annarra þjóða og margvíslegt efni frá Evrópusambandinu. Haft var samráð við hagsmunaaðila og var stefnan síðan samþykkt í verkefnisstjórn um upplýsingasamfélagið. Ríkisstjórnin samþykkti stefnuna 11. mars 2008.

Lesa meira
 

The User Challenge Benchmarking THe Supply Of Online Public Services - 18/1/08

Út er komin í 7. sinn könnun Evrópusambandsins á framboði á opinberri þjónustu. Þátttökuríki eru öll Evrópusambandslöndin auk Íslands og Noregs, Sviss og Tyrklands. Lesa meira
 

Rafræn opinber þjónusta - Matsaðferðir og staða Íslands. Skýrsla október 2007 - 8/1/08

Höfundur skýrslunnar er Eggert Ólafsson og var hún lokaverkefni hans í MPA-námi við Háskóla Íslands. Meginviðfangsefni ritgerðarinnar var að leita svara við því hvernig lagt er mat á rafræna opinbera þjónstu og kanna stöðu Íslands á sviði slíkrar þjónustu. Rannsakað var hvaða aðferðir og mælikvarða fræðimenn leggja til grundvallar þegar frammistaða í rafrænni opinberri þjónustu er metin. Þá var farið yfir fjölþjóðlegar samanburðarkannanir og staða Íslands greind og borin saman við þær þjóðir sem við skipum okkur oftast á bekk með. Lesa meira
 

Úttekt Capacent á framkvæmd stefnunnar um upplýsingasamfélagið 2004-2007 - 3/1/08

Úttekt Capacent á framkvæmd stefnunnar um upplýsingasamfélagið 2004-2007. Lesa meira
 

Hvað er spunnið í opinbera vefi 2007 - Niðurstöður - 14/12/07

Rafræn þjónusta opinberra aðila hefur aukist frá árinu 2005. Nú bjóða 19% stofnana upp á fullkomlega rafræna afgreiðslu erinda en fyrir tveimur árum buðu 3% upp á slíka þjónustu. Lesa meira
 

Skýrsla um langtímavarðveislu stafræns efnis - 25/7/07

Menntamálaráðuneytið hefur gefið út skýrslu um stöðu þekkingar og færni á langtímavarðveislu stafræns efnis. Í henni er núverandi staða á langtímavarðveislu stafræns efnis í heiminum tekin saman, jafnframt því að finna mögulegar fyrirmyndir fyrir Ísland. Lesa meira
 
Icepro - lógó

Handbók fyrir rafræn innkaup í XML er komin út - 8/3/07

Komnar eru út samnorrænar leiðbeiningar um notkun XML staðalsins UBL 2.0 frá OASIS. Í þeim er tekið tillit til þarfa Íslendinga varðandi rafræn skjöl. Samræmdar XML sendingar rafrænna reikninga, pantana og vörulista geta nú átt sér stað á milli Íslands og Norðurlanda.

Lesa meira
 

Ráðherraráðstefna um rafræna stjórnsýslu í Manchester- Greinargerð - 23/10/06

Ráðherraráðstefna um rafræna stjórnsýslu fór fram dagana 24. og 25. nóvember í Manchester á Englandi.Á ráðstefnunni var samþykkt sameiginleg yfirlýsing sem ætlað er að styðja við áætlun Evrópusambandsins fyrir upplýsingasamfélagið árið 2010. Lesa meira
 

Ábendingar um umræðutorg, netspjall og rafrænar kannanir - 29/8/06

Tilgangur þess að taka saman eftirfarandi ábendingar er að auðvelda stofnunum, ráðuneytum og sveitarfélögum að auka samráð og samskipti við almenning. Lesa meira
 

Tilraunir til samráðs við íbúa með rafrænum hætti - 28/8/06

Garðabær í samvinnu við verkefnisstjórn forsætisráðuneytisins um upplýsingasamfélagið. Lesa meira
 

Samráð og samskipti milli almennings og opinberra aðila - 28/8/06

Samantekt um tilraunaverkefni á vegum félagsmálaráðuneytisins. Lesa meira
 

Notkun heimila og einstaklinga á tæknibúnaði og interneti 2006 - 3/7/06

Út er komin ný skýrsla frá Hagstofu Íslands um notkun heimila og einstaklinga á tæknibúnaði og Interneti árið 2006. Lesa meira
 
CapGemini 2006

Capgemini - Online Availability of Public Services: How Is Europe Progressing? - 7/6/06

Web Based Survey on Electronic Public Services. Report of the 6th Measurement. June 2006.

Lesa meira

 

Aðgengi allra að vefnum - skýrsla um aðgengismál - 24/1/06

Forsætisráðherra lagði fram í ríkisstjórn, þann 13. janúar sl., skýrslu um aðgengi allra að vefnum. Skýrslan er unnin af forsætisráðuneyti og félagsmálaráðuneyti. Lesa meira
 

UT-dagurinn - Ný tölfræðirit frá Hagstofunni - 19/1/06

Í tilefni af UT-deginum hefur Hagstofan tekið saman tvö áhugaverð rit með upplýsingum um íslenska upplýsingatækniiðnaðinn og um Ísland í evrópsku upplýsingsamfélagi Lesa meira
 
Indicators for the Information Society in the Baltic Region 2005

Indicators for the Information Society in the Baltic Region 2005 - 15/12/05

Skýrslan er samvinnuverkefni Norræna ráðherraráðsins, Eystrasaltsráðsins og hagstofa aðildarlanda þess. Lesa meira
 

Nordic Information Society Statistics 2005 - 15/12/05

Skýrsla unnin í samvinnu við hagstofur Norðurlandanna. Í henni eru birtar niðurstöður um ýmis málefni sem snerta upplýsingasamfélagið á Norðurlöndum. Lesa meira
 
Mynd: Forsíða skýrslu - Hvað er spunnið í opinbera vefi?

Hvað er spunnið í opinbera vefi? - 12/12/05

Gerð hefur verið úttekt á vefjum ríkis og sveitarfélaga en þetta er í fyrsta skipti sem úttekt af þessari stærðargráðu er gerð á Íslandi.

Lesa meira
 

IT - privacy - 2/12/05

IT - privacy: Skýrsla um upplýsingaöryggi (á dönsku). Lesa meira
 

Evrópa verði leiðandi í notkun upplýsingatækni í heiminum - 25/11/05

Ráðherraráðstefna um rafræna stjórnsýslu fór fram dagana 24. og 25. nóvember í Manchester á Englandi. Á ráðstefnunni var samþykkt sameiginleg yfirlýsing sem ætlað er að styðja við áætlun Evrópusambandsins fyrir upplýsingasamfélagið árið 2010.

Lesa meira
 

Skýrsla starfshóps um upplýsingatækni í dreifbýli - 10/11/05

Kynnt á ráðstefnu um Upplýsingatækni í dreifbýli í Reykholti 10. nóvember 2005 Lesa meira
 
Mynd: Rafræn þjónustuveita - forsíða skýrslu

Rafræn þjónustuveita - Ísland.is - 4/10/05

Í maí 2005 kom út skýrsla um stefnumótun fyrir rafræna þjónustuveitu ríkis og sveitarfélaga. Höfundur er Halla Björg Baldursdóttir, forsætisráðuneyti, og er skýrslan unnin sem lokaverkefni í MBA-námi hennar við Háskólann í Reykjavík. Tilefni skýrslunnar er verkefni í stefnu ríkisstjórnarinnar, Auðlindir í allra þágu, um rafræna þjónustuveitu. Lesa meira
 

World Economic Forum - 1/9/05

World Economic Forum hefur í nokkur ár mælt rafræna færni þjóða heims (e. Network Readyness Index). Í síðustu könnun fyrir árið 2004 tóku 104 þjóðir þátt. Lesa meira
 

Notkun heimila og einstaklinga á tæknibúnaði og Interneti árið 2005 - 24/6/05

Tölvu- og internetnotkun einstaklinga er afar útbreidd á Íslandi. Árið 2005 notuðu 88% Íslendinga tölvu og 86% þeirra internet. Lesa meira
 

Opinn hugbúnaður - 31/5/05

Í apríl 2005 kom út skýrsla um opinn hugbúnað. Hún fjallar um það hvort og hvernig opinn hugbúnaður geti verið valkostur við séreignarhugbúnað. Fyrirtækið ParX – viðskiptaráðgjöf IBM vann skýrsluna fyrir Verkefnisstjórn um rafræna stjórnsýslu. Markmiðið með henni er að undirbúa stefnumótun stjórnvalda um notkun opins hugbúnaðar.

Lesa meira
 

Erlent samstarf um upplýsingatækni - 6/5/05

Tekin hefur verið saman skýrsla um upplýsingatæknisamvinnu á vegum ESB. Lesa meira
 

Fjarskiptaáætlun fyrir árin 2005-2010 - 18/4/05

Síðastliðinn laugardag kynnti samgönguráðherra fjarskiptaáætlun til næstu 5 ára. Lesa meira
 
Forsíða Capgeminiskýrslunnar frá 2005

eEurope og CapGemini - Web based survey - 3/3/05

Evrópusambandi hefur í nokkur ár staðið fyrir árlegri könnun á framboði á rafrænni þjónustu hjá aðildarríkunum ásamt Íslandi og Noregi. Lesa meira
 
Rafrænt umræðutorg, forsíða skýrslu

Rafrænt umræðutorg - 5/1/05

Í október 2004 kom út skýrsla um rafrænt umræðutorg. Höfundur er Halla Björg Baldursdóttir, forsætisráðuneyti og er skýrslan unnin sem verkefni í MBA-námi hennar við Háskólann í Reykjavík. Tilefni skýrslunnar er verkefni í stefnu ríkisstjórnarinnar, Auðlindir í allra þágu, sem fjallar um það hvernig auka megi samráð og samskipti milli almennings og opinberra aðila, til dæmis með uppsetningu umræðutorga þar sem fram fari skoðanaskipti um afmörkuð málefni. Lesa meira
 

Top of the Web 2004 - 1/12/04

Árið 2004 gekkst Evrópusambandið í annað sinn fyrir könnun á notkun rafrænnar þjónustu. Lesa meira
 

Samspil tungu og tækni - 15/11/04

Samspil tungu og tækni : afrakstur tungutækniverkefnis menntamálaráðuneytisins. Lesa meira
 

Notkun heimila og einstaklinga á tæknibúnaði og Interneti 2004 - 25/6/04

Í febrúarmánuði árið 2004 voru 86% heimila á Íslandi með tölvu og fjögur af hverjum fimm heimilum gátu tengst interneti. Lesa meira
 
Skýrsla Hugvits um rafræna stjórnsýslu - forsíða

Framtíðarsýn um rafræna stjórnsýslu - 31/3/04

Fyrirtækið Hugvit hefur í samráði við stefnumótunarnefnd um upplýsingasamfélagið sem starfaði á vegum forsætisráðuneytis 2003-2004 unnið að skýrslu um framtíðarsýn um rafræna stjórnsýslu. Lesa meira
 

Notkun heimila og einstaklinga á tæknibúnaði og Interneti 2002 og 2003 - 15/3/04

Næstum öll heimili á Íslandi hafa sjónvarp eða 97%. 91% heimila hafa myndbandstæki, 95% farsíma, 84% tölvu og 78% tengingu við internetið. 86% einstaklinga nota tölvu og fjórir af hverjum fimm nota internetið. Lesa meira
 
Forsíða bæklings

Stefna ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið 2004 -2007 - 11/3/04

Einstaklingurinn, tækifæri hans og velferð í samfélaginu eru leiðarljós nýrrar stefnu um upplýsingasamfélagið. Í henni segir m.a. að upplýsingatækni veiti einstaklingum, atvinnulífi og opinberri þjónustu tækifæri til að nýta sér þær auðlindir sem felast í upplýsingum, þekkingu og nýsköpun.

Lesa meira
 
Report - Cover

Íslenska upplýsingasamfélagið 2003 - Ensk þýðing - 2/2/04

Samantekt á ensku um stöðu íslenska upplýsingasamfélagsins á árinu 2003.

Lesa meira
 

Notkun fyrirtækja á upplýsingatæknibúnaði og rafrænum viðskiptum 2003 - 27/1/04

Næstum öll fyrirtæki á Íslandi nota tölvu eða 99%. 97% eru með tengingu við internetið og er háhraðatenging langalgengust (81%). Lesa meira
 
Mynd af forsíðu skýrslunnar Lög um rafræna stjórnsýslu ásamt greinargerð

Lög um rafræna stjórnsýslu ásamt greinargerð - 17/11/03

Með lögum nr.51/2003, um breytingu á stjórnsýslulögum nr.37/1993, var aukið við þau nýjum IX. kafla undir heitinu Rafræn meðferð stjórnsýslumála. Lesa meira
 
Úttekt á verkefninu um íslenska upplýsingasamfélagið

Úttekt á verkefninu um íslenska upplýsingasamfélagið - 29/11/02

Forsætisráðuneytið hefur látið gera úttekt á þróunarverkefninu um íslenska upplýsingasamfélagið sem ráðuneytið hefur stýrt frá árinu 1997. Úttektina framkvæmdi PWC Consulting, nú IBM Business Consulting Services, og liggja niðurstöður nú fyrir.

Lesa meira
 

Nordic Information Society Statistics 2002 - 1/6/02

Norræna ráðherraráðið og hagstofur Norðurlandanna hafa, að frumkvæði þess fyrrnefnda, gefið út skýrslu um upplýsingasamfélagið á Norðurlöndum. Lesa meira
 

Skýrsla starfshóps um rafræn eyðublöð - 1/3/02

Þann 4. janúar 2001 skipaði dómsmálaráðuneytið starfshóp er hefur það hlutverk að skoða þær umsóknir (eyðublöð), leyfisveitingar, vottorð o.þ.h. sem almenningur sækir til ráðuneytisins og stofnana þess. Lesa meira
 

Útgefið efni um upplýsingasamfélagið - 1/6/01

Listi yfir rit sem fjalla um eða tengjast framkvæmd stefnu stjórnvalda um upplýsingasamfélagið.

Lesa meira
 

Skýrsla um fjarskiptaþjónustu vegna fjarkennslu - 17/5/01

Nefnd á vegum menntamálaráðuneytisins hefur skilað skýrslu með tillögum um úrbætur í fjarskiptaþjónustu vegna fjarkennslu. Lesa meira
 

Internetkönnun í mars 2001 - 11/5/01

Internetkönnun gerð af PWC í mars 2001 sýndi að 67,8% hafa aðgang að tölvu með Interneti á heimili, 41,1% á vinnustað og 17,7% í skóla. 23,1% hafa ekki aðgang að tölvu með Interneti .

Lesa meira
 

Ný verkefnaáætlun í rafrænni menntun - 9/3/01

Verkefnaáætlun menntamálaráðuneytisins í rafrænni menntun 2001-2003, Forskot til framtíðar var kynnt á UT2001 ráðstefnunni þann 9. mars 2001 og vefurinn menntagatt.is opnaður. Lesa meira
 

Internetkönnun í september 2000 - 19/10/00

Internetkönnun sem unnin var af PWC í september 2000 sýndi að 64,7% höfðu aðgang að tölvu með Interneti á heimilum, 41,2% á vinnustöðum og 17,9% í skóla. 22,2% höfðu ekki aðgang að tölvu með Internettengingu.

Lesa meira
 

Rafræn viðskipti og stjórnsýsla - vinnuáætlun apríl 2000 - 26/4/00

Vinnuáætlun um þróun rafrænna viðskipta og rafrænnar stjórnsýslu 2000-2002.

Lesa meira
 
Frá blaðamannafundi þar sem skýrslan var kynnt.

Skýrsla um bandbreiddarmál - 6/1/00

Að tilstuðlan verkefnisstjórnar um upplýsingasamfélagið, sem starfar á vegum forsætisráðuneytis, svo og samgönguráðuneytis og RUT-nefndar hefur verið gerð úttekt á flutningsgetu fjarskiptakerfisins.

Lesa meira
 

Internetkönnun í nóvember 1999 - 1/11/99

Internetkönnun gerð af Gallup í nóvember 1999 sýndi að 49,7% hafa aðgang að Interneti á heimili, 39,3% í vinnu og 18,7% í skóla. 31,1% hafa ekki aðgang að Interneti. Lesa meira
 
Frá blaðamannafundi þar sem skýrslan var kynnt

Fjarvinnsla á landsbyggðinni - 18/10/99

Skýrsla um notkun upplýsingatækni við fjarvinnslu og gagnavinnslu á landsbyggðinni.

Lesa meira
 

Rapport om IT og demokrati og elekronisk handel - 1/9/99

Skýrsla frá norrænni embættismannaráðstefnu um upplýsingatæknimál sem haldin var í Reykjavík 22. júní 1999.

Lesa meira
 

Internetkönnun í mars og apríl 1999 og stöðuskýrsla 1998 - 4/5/99

Út er komin stöðuskýrslu 1998 um íslenska upplýsingasamfélagið og niðurstöður úr Internetkönnun sem Gallup framkvæmdi í mars og apríl 1999. 47,2% hafa aðgang að Internettengdri tölvu á heimili, 33,8% í vinnu og 11,2% í skóla. Lesa meira
 
Framkvæmd stefnu ríkisstjórnar Íslands um upplýsingasamfélagið

Stöðuskýrsla 1998 - Efnisyfirlit - 4/5/99

Framkvæmd stefnu ríkisstjórnar Íslands um upplýsingasamfélagið - Stöðuskýrsla 1998

Lesa meira
 

Aldamótavandinn, stöðumat : skýrsla 2000 nefndar. - 15/2/99

Í maí 1998 skipaði fjármálaráðherra nefnd vegna 2000-vandans í tölvum og tækjabúnaði. Í þessari stöðuskýrslu kemur fram mat nefndarinnar á því hvernig viðbúnaði til að koma í veg fyrir truflanir vegna 2000-vandans var háttað hér á landi við síðustu áramót. Matið er einkum byggt á símakönnunum og sjálfsmati aðila. Lesa meira
 

Rafræn viðskipti - 4/1/99

Rafræn viðskipti - umfjöllun um íslensk lög. Lesa meira
 

Skýrslur vinnuhópa og nefnda - 20/8/98

Greinargerð nefndar um hugbúnaðargerð ríkisins ásamt útgefnu efni RUT-nefndar o.fl.

Lesa meira
 

Ýmislegt um upplýsingasamfélagið - 20/8/98

Annað áhugavert efni um upplýsingasamfélagið. Lesa meira
 

Stefnumótunarrit um upplýsingasamfélagið - 20/8/98

Stefnumótunarrit um íslenska upplýsingasamfélagið 1998. Lesa meira
 

Internetkönnun haustið 1998 - 18/8/98

Myndrænar niðurstöður úr könnun á aðgengi og áhuga á tölvum og Interneti á Íslandi haustið 1998 Lesa meira
 

Internetkönnun í febrúar 1998 - 25/3/98

Samkvæmt niðurstöðum þessara könnunar hefur tæpur helmingur landsmanna aðgang að Internetinu á heimili, í vinnu eða í skóla (49,5%) í febrúar 1998. Lesa meira
 

Innkaupahandbók um upplýsingatækni 1998 - 15/2/98

Bókin er sett saman til að auðvelda stjórnendum og ráðgjöfum ríkisstofnana og -fyrirtækja við innkaup á hverskonar hug- og vélbúnaði ásamt þjónustu á sviði upplýsingatækni. Lesa meira
 

Framtíðarsýn ríkisstjórnar Íslands um upplýsingasamfélagið frá 1996 - 1/10/96

Stefna ríkisstjórnar Íslands í málefnum upplýsingasamfélagsins

Lesa meira
 

Ísland og upplýsingasamfélagið: drög að framtíðarsýn - 15/12/95

Ísland og upplýsingasamfélagið: drög að framtíðarsýn. Skýrsla gefin út í desember 1995 Lesa meira
 

Innkaupahandbók um upplýsingatækni 1994 - 15/1/94

Innkaupahandbók þessi er sett saman til að leiðbeina ríkisstofnunum við innkaup á búnaði í upplýsingatækni. Lesa meira
 






Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica