Útgáfa

Hvað er spunnið í opinbera vefi 2009? - 22/12/09

Niðurstöður þriðju könnunar á opinberum vefjum liggur fyrir. Könnunin var sem fyrr tvíþætt. Annars vegar voru vefirnir metnir af sérfræðingum samkvæmt gátlistum um innihald, nytsemi, aðgengi og þjónustu. Hins vegar svöruðu forsvarsmenn vefjanna spurningalista. Metnir voru 274 vefir ríkisstofnana, ráðuneyta og sveitarfélaga. Svarhlutfall var um 90%.

Lesa meira

Úttekt á OpenOffice.org skrifstofuvöndlinum - 10/9/09

Ríkisskattstjóri hefur gert úttekt á frjálsum og opnum skrifstofuhugbúnaði fyrir forsætisráðuneytið. Verkefni RSK fólst annars vegar í að prófa helstu kerfishluta OpenOffice.org og hins vegar í að prófa samskipti innanhússkerfa RSK við hugbúnaðinn. Lesa meira

Arðsemi rafrænnar stjórnsýslu metin með staðalkostnaðarlíkaninu - 10/9/09

Pricewaterhouse Coopers hefur lokið við verkefni fyrir forsætisráðuneyti sem snérist um að leggja mat á arðsemi rafrænnar stjórnsýslu. Verkefni PwC fólst í að nota staðalkostnaðarlíkanið til að mæla arðsemi innleiðingar rafrænna stjórnsýslukerfa og einföldunaraðgerða fyrir notendur opinberrar þjónustu. Lesa meira

Rafræn eyðublöð og XML skema - 12/6/09

Út er komin skýrsla á vegum forsætisráðuneytisins þar sem fjallað er um gerð XML skema fyrir rafræn samskipti m.a. með tilliti til rafrænna eyðublaða. Í hennni eru lögð fram frumgerð að tilraunaútgáfu á stöðlungi1 sem lýst er með XML skema. Lesa meira

Verkfærakista og vefhandbók - 20/5/09

Í tengslum við UT-daginn 2009 voru gefnir út tveir einblöðungar. Annars vegar til að vekja athygli á verkfærakistunni á island.is og hins vegar til að kynna vefhandbókina á ut.is. Lesa meira

Nýtt fræðsluefni hér á vefnum - 3/4/09

Tvær nýjar „handbækur“ um upplýsingatækni eru nú aðgengilegar hér á UT-vefnum. Vefhandbók um opinbera vefi er leiðarvísir um uppsetningu og viðhald vefja. Stafrænt frelsi er fræðsluefni um opinn og frjálsan hugbúnað, opna staðla og frjálst samfélag. Lesa meira






Útlit síðu: