Ríkisstjórnin hefur samþykkt að hefja undirbúning fyrir stofnun upplýsingatæknimiðstöðvar. Sett verður á fót framkvæmdanefnd sem mun útfæra tillögur um skipulag og starfsemi miðstöðvarinnar og móta henni fjárhagsáætlun.
Lesa meiraRáðherrar aðildarríkja Evrópusambandsins, inngönguríkja, umsóknarríkja og EFTA-ríkja samþykktu á fundi í Malmö þann 18. nóvember 2009 yfirlýsingu um stefnu í rafrænni stjórnsýslu fram til ársins 2015. Fundurinn var haldinn í tengslum við ráðherraráðstefnu um rafræna stjórnsýslu sem Svíar stóðu fyrir í tengslum við formennsku sína í ráðherraráði ESB.
Lesa meiraRíkisendurskoðun hefur gefið út rit sem ætlað er að fræða starfsmenn ríkistofnana um möguleika svokallaðs frjáls hugbúnaðar og leiðbeina um val á slíkum hugbúnaði. Í ritinu kemur fram að kostnaður íslenska ríkisins vegna kaupa á hugbúnaði hafi numið rúmlega 7,5 ma.kr. á tímabilinu 2006 til 2008.
Lesa meira