Samræmi í notkun tengla og flýtileiða auðveldar notendum að finna þær upplýsingar sem leitað er að. Einnig þarf að ganga úr skugga um að skipulag tengla henti fötluðum notendum, t.d. blindum sem nota raddgervil til að lesa síðurnar eða einstaklingum sem geta ekki notað mús til að skoða vefi.
Lesa meiraMikilvægt er að tryggja að notkun lita og mótsetning (e. contrast) sé á þann veg að notendum finnist þægilegt að lesa texta og nýta sér þjónustuna.
Lesa meiraLetur má aldrei vera of smátt og ráðlegt er að bjóða notendum upp á stillingar sem stækka/minnka letur á vefsíðum.
Lesa meiraSjálfsagt þykir að nota myndir á opinberum vefjum en hafa ber í huga að þær birtast ekki blindum notendum eða þeim sem kjósa sérsniðna vafra til að skoða vefina. Þess vegna þarf að bjóða þessum notendum upp á aðra valkosti.
Lesa meiraAukinn gagnahraði gefur opinberum aðilum eins og öðrum tækifæri til að miðla upplýsingum með notkun margmiðlunartækni. Hér getur verið um að ræða myndskeið frá fundum, ráðstefnum eða framsetning á skýrslum með aðstoð Flash-tækninnar.
Lesa meiraMikilvæg virkni innan síðunnar, eins og leiðarkerfi, má ekki byggja eingöngu á javascript-staðlinum. Það er lykilatriði er að vefsíðan virki þegar slökkt er á þeirri virkni sem "javascript" hefur upp á að bjóða.
Lesa meiraOpinberir vefir eru ætlaðir öllum hópum samfélagsins og því þarf að huga sérstaklega að innflytjendum og einstaklingum með lestrarörðugleika.
Lesa meiraEkki skal nota töflur til að hanna vefi eða viðmót þeirra. Töflur nýtast eingöngu til að koma á framfæri upplýsingum eða efni til notenda sem ekki er hægt að setja fram á annan hátt. Töflur þarf að skilgreina rétt svo auðvelt sé að lesa upplýsingar úr þeim.
Lesa meiraMyndasvæði er í raun mynd á vefnum sem býður notendum upp á ýmsa aðgerðarmöguleika. Oftast eru þessi svæði notuð til að koma á framfæri tenglum eða ýmsum upplýsingum. Nauðsynlegt er að nota eingöngu "Client"-side myndasvæði á opinberjum vefjum.
Lesa meiraYtri skjöl á vefjum þurfa að vera rétt skilgreind fyrir skjálesara þannig að þau nýtist blindum og sjónskertum. Þetta á sérstaklega við skjöl sem sett eru á vefinn í formi PDF og Word.
Lesa meiraForðast ber að birta myndir eða grafík sem blikka á skjá notanda. Ef slíkt er gert þarf að ganga frá efni þannig að notendur geti slökkt á á því.
Lesa meira