3.2.1 Tenglar og flýtileiðir
Gæðakönnun
Hafa myndhnappar, myndatenglar, forskriftarhlutar og sambærileg atriði samsvarandi textaútgáfu?
Litaval á tenglum
Hefð er fyrir því að skilgreina tengla bláa og undirstrikaða. Þetta á sérstaklega við tengla sem birtir eru samhliða texta í meginmáli vefsíðu. Tenglar sem notendur hafa heimsótt eru gerðir fjólubláir.
Í meginmáli er góð regla að hafa ekki marga tengla mjög nálægt hvor öðrum. Tenglar þurfa að vera aðgreinanlegir frá öðrum texta, t.d. með undirstrikun.
Hvert sem litavalið verður er góð vinnuregla að hafa í huga hvort notendur geti aðgreint fljótt venjulegan texta frá tenglum sem hægt er að smella á. Litaval þetta á þó ekki við tengla í veftré sem oft er settir fram í áberandi hönnun til hliðar frá meginmáli og því átta notendur sig fljótt á tilgangi þess.
Þegar myndir eru notaðar sem tenglar á aðrar síður þarf t.d. að lýsa því í skýringartexta hvert tengillinn vísar. Textaútgáfa af tenglum þó alltaf æskileg og í gæðakönnun forsætisráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga er það vefjum til tekna .
Aðgengi og tenglar
Ekki geta allir einstaklingar notað mús til að skoða vefsíður og verða því að nýta sér lyklaborð. Það má auðvelda fyrir notkun lyklaborðs á vefnum með því að skilgreina flýtilykla fyrir mikilvæga tengla. Er það gert með notkun „accesskeys“-eigindis. Ef þessi leið er farin þarf að gera sérstaka síðu á vefnum til að kynna flýtilyklana fyrir notendum, annars eru þeir faldir og notendur vita ekki af þeim.
TAB-takkinn á lyklaborðum (PC-tölvur) eða CTRL (á Apple vélum) getur einnig komið notendum vel. TAB-röðin þarf að vera rétt skilgreind og rökrétt.
Þegar tengt er í annað efni, eða ytri skrár, er góð vinnuregla að hafa heiti tenglana eins lýsandi og mögulegt er. Ekki er rétt að nota tengla með textanum "smellið hér". Meira lýsandi fyrir efni tengilsins gæti verið "Skýrsla um ...:".
Mikilvægt er að nota viðeigandi lýsingar á tenglum um hvert þeir muni leiða notendur, t.d. er ekki ráðlegt að skýra tengla „smellið hér“ eða „lesið meira“ nema með því að virkja „link title“-eigindið.
Nokkuð algengt er að tenglar séu stilltir þannig að þeir opnist í nýjum glugga í vafra. Ef slíkt er gert má tilkynna notendum það við hlið tengilsins því það getur verið hvimleitt að fara óvænt af því vefsetri sem notandinn er að nýta sér. Þetta gerir það einnig að verkum að "Back"-hnappurinn virkar ekki en hann er mjög mikið notaður af einstaklingum sem skoða vefi.

