3.2 Aðgengismál

3.2.2 Notkun lita og mótsetning

Gæðakönnun

Er hægt að breyta litum á bakgrunni eða aðalletri til að koma til móts við þarfir fólks sem á erfitt með að lesa, t.d. vegna sjónskerðingar eða lesblindu?

Skýring: 0=nei, 1=já.

Bakgrunnslitir

Á vefsíðum er mikilvægt að ákveðið jafnvægi sé í litasamsetningu og svokallaðri mótsetningu (e. contrast). Með þessu er átt við að litasamsetning á milli texta og bakgrunns þarf að lúta ákveðnum reglum.

Ef mótsetning er of lág rennur texti fullmikið saman við bakgrunninn og verður erfitt fyrir notendur að lesa hann. Þetta á sérstaklega við lesblinda notendur. Af þessum sökum er rétt að byggja upp vefsíðu með litasamsetningu sem vitað er að reynist flestum notendum vel.

Setjið fram dökkan texta á ljósum grunni, gott dæmi er svartur texti á hvítum bakgrunni. Ekki nota óhefðbundna litasamsetningu eins og rauðan texta á grænum bakgrunnslit.

Þetta á auðvitað einnig við þegar áherslubox eru notuð eins og hér að ofan en slíkt er orðið mjög algengt á vefjum. Alltaf þarf að huga að jafnvægi á milli lita og mótsetningu.

Æskilegt er að bjóða notendum að breyta bakgrunnslitum og er það tiltölulega einfalt í framkvæmd og er stjórnað í gegnum mismunandi stílsnið. Iðulega er þessar stillingar settar efst í hægra horn á hverja síðu og auðkennt með tákni. Eftirfarandi valmynd er staðsett í á vef Stjórnarráðs Íslands og gefur notendum möguleika á að stækka letur og breytinga bakgrunnsstillingum.

Dæmi um valmynd þar sem hægt er að breyta leturgerð og litastillingum

Ítarefni

Eftirfarandi vefslóð er ekki hýst á UT-vefnumPrófun á mótsetningu

Eftirfarandi vefslóð er ekki hýst á UT-vefnumWeb Developer toolbar fyrir Mozilla Firefox - viðbót við vafra fyrir hönnuði.

Eftirfarandi vefslóð er ekki hýst á UT-vefnumWeb Accessibility toolbar fyrir Microsoft Explorer - viðbót við vafra fyrir hönnuði.







Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica