3.2 Aðgengismál

3.2.3 Leturgerð og stækkanir

Gæðakönnun

Geta notendur stækkað letur á skjánum?

Sjá upplýsingar um stigagjöf.

Ákveðnar leturgerðir henta betur til lestrar á skjá en prenti. "Verdana", "Georgia" og "Trebuchet" eru gott um slíkar leturgerðir. Það er gott ráð að skilgreina leturgerðir sem taka við ef notendur hafa eldri vafra eða ekki réttar leturgerðar uppsetningar á tölvum sínum og geta þannig ekki birt fyrsta valkost. Algengari leturgerð eins og "Arial" getur tekið við af "Verdana" ef vafrinn getur ekki sett fram rétta leturgerð.

Forðist að láta letur taka breytingum þegar notendur fara með músina yfir tengla eða annan texta. Þetta á við breytingar eins og stækkun leturs, feitletrun og skáletrun.

Leturstærðir er rétt að skilgreina og stilla með notkun stílsniða og þannig er auðvelt að leyfa notendum að stækka og minnka letur á vefsíðum með stillingum efst á síðunni. Nútíma vafrar hafa einnig þann möguleika að geta stækkað texta án þess að gert sé ráð fyrir sérstökum stillingum á vefnum þó að það svo oft betri kostur.

Hér að neðan má sjá stillingar frá vef Stjórnarráðs Íslands sem gefur notendum færi á að stækka letur og minnka letur.

Dæmi um valmynd þar sem hægt er að breyta leturgerð og litastillingum







Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica