3.2 Aðgengismál

3.2.4 Myndnotkun

Gæðakönnun

Athugað er hvort allar myndir séu með "alt"-texta.

Sjá upplýsingar um stigagjöf

Skýringar með myndum

Blindir og sjónskertir notendur nota raddgervil til að lesa vefsíður og til að koma til móts við þennan notendahóp þarf að fylgja skýringartexti með myndum, svokallaður „alt“-texti Skýringar með myndum þurfa að vera lýsandi.

Tryggja þarf að vefumsjónarkerfi sem valið er auðveldi þeim sem setja inn efni á vefi að skrifa „alt“-texta með myndum. Þegar myndir eru notaðar sem tenglar á aðrar síður þarf t.d. að lýsa því í „alt“-textanum hvert tengillinn vísar.

Til að lýsa flóknum myndum, sem erfitt er að lýsa í einni setningu, t.d. skipuritum, er hægt að nota „longdesc“-eigindið.

Almenn mynd

Hér að neðan gefur að líta mynd af Jóhönnu Sigurðardóttur, þáverandi félags- og tryggingamálaráðherra, ávarpa jafnréttisþing sem haldið var 16. janúar 2009.

Ráðherra ávarpar jafnréttisþing þann 16. janúar 2009

Ef farið er með músina yfir þessa mynd sprettur upp stutt lýsing ("alt"-texti) á henni: "Ráðherra ávarpar jafnréttisþing 16. janúar 2009“ og telst það lýsa myndinni nokkuð vel. Þegar umsjónarmaður vefs setur inn sambærilegar myndir er mikilvægt að þessi lýsing sé í lagi.

Óljós skýringartexti með myndinni hér að ofan hefði verið: „Mynd“, „ráðherra“, „jafnréttisþing“ eða verst af öllu að væri að hafa engan skýringartexta.

Þegar myndir þjóna engum efnislegum tilgangi á vefsíðum, til dæmis skraut, þá er leyfilegt að hafa engan skýringartexta. Í þeim tilvikum er þó lykilatriði að skilgreina tómt eigindi í "alt"-textanum.

Blikkandi myndir

Varast ber notkun blikkandi mynda en slíkt getur framkallað köst hjá flogaveikum einstaklingum og mígrenissjúklingum.

Ef myndir eru á hreyfingu, t.d. „flash“-myndir, er rétt að gefa notendum kost að stöðva slíkar myndir. Blikkandi myndir eru einnig til ama fyrir aðra notendur.

Mynd með tengil

Einnig er mikilvægt að hafa skýringartexta með tenglum sem settir eru fram í myndrænu formi, til dæmis auglýsingar um ákveðin málefni. Hér að neðan gefur að líta auglýsingu sem birt er á vef forsætisráðuneytisins til að kynna vefinn Starfatorg.is. Skýringartexta má sjá með því að færa músina yfir myndina.

Laus störf hjá ríkinu - Starfatorg.is

Óljós skýringartexti með þessari mynd væri: „Starfatorg“ eða "laus störf" eða þá að hafa engan texta.







Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica