3.2.5 Notkun myndskeiða og margmiðlunarefnis
Gæðakönnun
Er margmiðlunarefni á vefnum með textastuðningi eða er textaútgáfa í boði?
Stigagjöf: 0=nei, 1=já.
Þumalputtareglan er sú að allt efni sem sett er fram með notkun myndskeiða eða annars konar margmiðlun þarf að vera aðgengilegt í öðru formi, til dæmis með hefðbundnum textalýsingum. Þannig er mikilvægt að texta myndskeið fyrir heyrnarlausa notendur eða birta góða samantekt úr efninu í þeim tilgangi.
Gera þarf ráðstafanir með texta í Flash-myndum en texta myndarinnar þarf að setja inn í "object title" til að skjálesarar geti lesið textann upp fyrir notendur.
Það er sjálfsagt að nýta sér þessar tækninýjungar. Notkun á Flash-tækninni krefst hins vegar þess að notendur hlaði niður viðbót í vafrann, yfirleitt er það sjálfvirkt ferli sem fer af stað ef viðbótin er ekki til staðar en sumir kjósa að setja ekki upp viðbætur í vafrann.
Þrátt fyrir að viðbætur í vafra hlaðist yfirleitt sjálfkrafa niður er engu að síður góð vinnuregla að safna saman tenglum til að aðstoða notendur við að ná sér í þær viðbætur sem nauðsynlegar eru og útskýra vel tilganginn með þeim.
Vegna þess að þessar viðbætur eru notendum valfrjálsar og ekki endilega mjög útbreiddar má mikilvæg virkni ekki byggjast á Flash-tækninni og á það að tryggja að sem allra flestir notendur geti nýtt sér þjónustuna.
Ekki byggja mikilvæga virkni á notkun Flash. Mikilvæg virkni felst í leiðarkerfi vefsins og í formum eða eyðublöðum sem viðskiptavinir geta notað til að senda stofnuninni upplýsingar.
Ekki setja fram margmiðlunarefni á vefnum nema að vel athuguðu máli. Það er alltaf möguleiki á að notendur geti ekki nýtt sér efni sem er sett fram á þann máta og það er góð vinnuregla að huga að öðrum kostum fyrst.

