3.2 Aðgengismál

3.2.6 Mikilvæg virkni má ekki byggja á forskrift (e. javascript)

Gæðakönnun

Er öll virkni í lagi ef slökkt hefur verið á forskriftum?

Sjá upplýsingar um stigagjöf.

Javascript

Með réttri notkun á javascript er mögulegt að auka virkni síðunnar, gera hana þægilegri og á vissan hátt heillandi fyrir notendur. Það er þó alltaf einhver hópur notenda sem nýtir sér ekki javascript-tæknina. Af þeim sökum er nauðsynlegt að vefsíðan virki þrátt fyrir að slökkt sé á javascript.

Javascript reynist notendum sem sækja sér vefþjónustu í gegnum skjálesara, síma eða handtölvur illa. Þess vegna er gott ráð að hanna vefinn án javascript og tryggja að allt virki vel, því næst má skoða hvort auka megi möguleika vefsins með javascript.

Javascript getur nýst í ýmsum tilgangi, t.d. við meðhöndlun forma á vefsíðum, setja fram prentvænt efni eða stækka letur. Það er þó góð regla að nýta ekki javascript ef hefðbundnari leiðir gefa sama eða svipaðan árangur.

Dæmi

Á vefsíðu ríkisútvarpsins er leiðarkerfið sett fram með javascript. Undirflokkar í leiðarkerfi birtast notendum þegar músin fer yfir yfirflokka vefsins.


Dæmi um virkni í gegnum Javascript-staðalinn

Ef notandi sem nýtir sér ekki javascript heimsækir vefsíðu ríkisútvarpsins fær hann ekki jafn fulla mynd af veftrénu en tryggt er að virknin tapist ekki því áfram er hægt að smella á yfirflokka.

Ítarefni

Eftirfarandi vefslóð er ekki hýst á UT-vefnumWeb Developer toolbar fyrir Internet Explorer - hægt að slökkva á virkni Javascript í prófunartilgangi

Eftirfarandi vefslóð er ekki hýst á UT-vefnumWeb Developer toolbar fyrir Mozilla Firefox - hægt að slökkva á virkni Javascript í prófunartilgangi.







Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica