3.2 Aðgengismál

3.2.9 Töflunotkun

Gæðakönnun

Hafa töflur verið skilgreindar með dálka- og raðaupplýsingum (row and column headers?)

Sjá upplýsingar um stigagjöf.

Það er sjálfsagt að nýta töflur á vefsíðum til að koma upplýsingum á framfæri. Hins vegar eiga skjálesarar oft erfitt með að lesa innihald sem sett er fram í töflum og því þarf að vanda til verka.

Röng töflunotkun - dæmi

Eftirfarandi upplýsingar eru af vef félags- og tryggingamálaráðuneytisins og sýna komu flóttafólks til Íslands frá árinu 1956.

Komuár Heimaland Fjöldi
1956 Ungverjaland 52
1959 Júgóslavía 32
1979 Víetnam 34
1982 Pólland 26
1990 Víetnam 30
1991 Víetnam 30
Samtals 204

Framsetningu á upplýsingunum er hér breytt til að sýna ranga töflunotkun. Við fyrstu sýn virðist ekkert óeðlilegt við þessa töflu og er uppbygging hennar skiljanleg fyrir flesta notendur. Þegar einstaklingar sem nota skjálesara heyra upplestur á þessari töflur kemur þó í ljós galli á þessari framsetningu.

Lestur töflunnar með aðstoð frá skjálesara myndi gefa notendum eftirfarandi upplýsingar í þessari röð: "Komuár Heimaland Fjöldi 1956 Ungverjaland 52 1959 Júgóslavía 32 1979 Víetnam 34 1982 Pólland 26 1990 Víetnam 30 1991 Víetnam 30 Samtals 204".

Taflan hér að ofan er dæmi um ranga uppsetningu töflu sem er því miður of algengt á mörgum vefsvæðum.

Rétt töflunotkun - dæmi

Til þess að gera töfluna læsilegri þarf að skilgreina hvernig taflan er uppbyggð. Í flestum tilfellum hjálpa vefumsjónarkerfi notendum að bæta þessum upplýsingum inn, ef þau gera það ekki þá er nauðsynlegt að gera það beint í kóða handvirkt:

Skilgreina þarf fyrirsagnir töflunnar sérstaklega með því að nota th-merki í stað td-merkis í kóða.

Þannig veit vafrinn og einnig skjálesari að þarna sé fyrirsögn og gefur notendum það til kynna. Þetta þyrfti að gera fyrir allar fyrirsagnir töflunnar.

Næsta skref væri að búa til stutta lýsingu með því að nota til þess "summary".

Einstaklingar sem sjá ekki töfluna og nota raddgervil átta sig því betur á efnivið hennar og geta þá ákveðið hvort þeir vilji fá nánari upplestur á henni eða halda áfram.

Komuár Heimaland Fjöldi
1956 Ungverjaland 52
1959 Júgóslavía 32
1979 Víetnam 34
1982 Pólland 26
1990 Víetnam 30
1991 Víetnam 30
Samtals 204

Ítarefni

Ýmsar aðrar leiðir eru mögulegar til að tryggja að töflur séu aðgengilegar öllum sem ekki hefur verið fjallað um hér..

Eftirfarandi vefslóð er ekki hýst á UT-vefnumMaking accessible tables - how to guide







Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica