3.2.10 Er boðið upp á client side myndasvæði í stað server side?
Gæðakönnun
Hafa myndasvæði (e. image maps) samsvarandi textatengla í boði?
Hefur verið boðið upp á client side myndasvæði í staðinn fyrir server side myndasvæði þar sem það er viðeigandi?
Myndasvæði (e. image map)
Myndasvæði er í raun mynd á vefnum sem býður notendum upp á ýmsa aðgerðarmöguleika. Oftast eru þessi svæði notuð til að koma á framfæri tenglum eða ýmsum upplýsingum. Á eftirfarandi vefslóð gefur að líta yfirlitsmynd af Íslandi og með því að færa músina yfir ákveðið landssvæði birtist nafn þess sveitarfélags sem svæðið tilheyrir.
Íslensk sveitarfélög - kort á vefnum kosning.is
Til þess að þetta sé mögulegt þarf að búa til svokölluð myndasvæði þar sem vafrinn gefur notendum aðgerðarmöguleika þegar músin er færð á milli svæða. Tvær leiðir eru færar til að hanna og viðhalda myndasvæði á vefnum. Client-side myndasvæði er algengasta leiðin og sú sem mælt er með notuð sé.
Mælt er með að "Client"-side myndasvæði séu notuð eingöngu á opinberum vefjum þar sem aðgengi að þeim er mun betra. Til að tryggja aðgengi þeirra sem nýta sér skjálesara á vefjum þarf að ganga úr skugga um að skýringartexti fylgi öllum skilgreindum svæðum á þeirri mynd sem notuð er sem myndasvæði.
"Client-side"-myndasvæði
Með því að nýta "Client"-side myndasvæði er vafri notenda látinn sjá um að reikna út hvar músin er staðsett yfir viðkomandi myndasvæði og sendir notendum þá viðeigandi upplýsingar (eins og gert er á vefnum kosning.is í dæminu hér að ofan). Myndasvæðið er þannig hannað, oftast í til þess gerðu forriti, þar sem svæðin eru valin og merkt með ákveðnum hnitum.
"Server-side"-myndasvæði
Þegar myndasvæði er "Server"-side er vafri notenda ekki nýttur í þeim tilgangi að koma viðeigandi upplýsingum á framfæri heldur er það skrá sem liggur á þeim vefþjóni sem hýsir síðuna. "Server"-side myndasvæði gera þeim erfitt um vik sem þurfa að styðjast við önnur tæki en músina til að skoða vefi. Ekki er mælt með notkun "Server"-side myndasvæða á opinberum vefjum.

