3.2 Aðgengismál

3.2.11 Ytri skjöl og skjálesarar

Gæðakönnun

Hafa PDF-skjöl verið skilgreind rétt fyrir skjálesara? Það getur meðal annars falist í að hafa millifyrirsagnir í skjölum. Nægilegt er að mest skoðuðu skjölin séu aðgengileg með þessum hætti.

Stigagjöf: 0=nei, 1=já.

Ytri skjöl eru mjög algeng á opinberum vefjum. Þessi skjöl geta hentað fyrir stórar skýrslur sem ekki er raunhæft að birta í vefformi. Einnig er algengt að ýmis konar greinargerðir, fundargerði, lög og reglugerðir séu birtar í formi PDF. Mælt er með því að birtingu Word skjala verði hætt alfarið þar sem þau skapa ákveðin vandamál fyrir notendur sem eiga ekki viðkomandi hugbúnað á tölvum sínum.

Ítarlegar leiðbeiningar hafa verið gefnar út á um hvernig megi útbúa skjöl í Microsoft Word og OpenOffice og breyta þeim í PDF með aðgengi allra að leiðarljósi. 

Microsoft Word með Acrobat 7.0, CutePDF og Save As PDF í Office 2007

Eftirfarandi skjal opnast í PDF-lesaraLeiðbeiningar fyrir Microsoft Word með Acrobat 7.0, CutePDF og Save As PDF

Leiðbeiningar fyrir OpenOffice

Eftirfarandi skjal opnast í PDF-lesaraLeiðbeiningar fyrir OpenOffice - Export as PDF

Leiðbeiningarnar eru hér að fram en helstu atriði sem þarf að hafa í huga eru:

  • Nota orðskýringar (e. alternative text) með myndum.
  • Tryggja að gröf, súlurit og flóknar töflur séu skiljanlegar með stuttri samantekt um efni þeirra.
  • Nota bókamerki (e. bookmarks) en það á sérstaklega við um löng skjöl.
  • Allar fyrirsagnir séu skilgreindar með stílum, Heading 1, Heading 2 o.s.frv.
  • Textaútgáfa þarf að vera af mikilvægum skjölum.






Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica