3.2 Aðgengismál
3.2.12 Er hægt að stjórna blikki?
Blikkandi myndir eru til ama fyrir notendur. Flogaveikir einstaklingar eru sérstaklega viðkvæmir fyrir blikki á skjánum og eiga í hættu að fá flogakast við slíkar aðstæður.
- Vara þarf notendur við fyrirfram ef blikk er í vændum.
- Ef blikk er óumflýjanlegt af einhverjum ástæðum þarf það að slökkva sjálfkrafa á sér innan ákveðins tíma.
Hreyfimyndir eru einnig vandmeðfarnar. Texti á hreyfingu skapar ýmisleg vandamál, sérstaklega fyrir fatlaða einstaklinga eða þá sem eiga erfitt með lestur.
- Forðist notkun hreyfimynda ef aðrar lausnir eru mögulegar.
- Leyfið notendum að stöðva hreyfimyndir ef þær eru í notkun.

