3.2.13 Rammar með titla
Gæðakönnun
Hafa allir rammar titla? (Til að auðvelda vafur um þá)
Stigagjöf: 0=nei, 1=já, .=á ekki við.
Rammar eru í raun margar stakar vefsíður og birtast sem ein heild. Þessi aðferð var algeng hér áður fyrr en ýmis vandamál fylgja þessari aðferð sérstaklega er varðar notagildi og aðgengi:
- Erfitt að senda síðuna áfram og slóð hennar er oft ruglingsleg.
- Erfitt að telja hversu margir gestir koma á vefsíðuna.
- Skjálesarar eiga erfitt með að skilja á milli ramma.
- Prentun á vefnum verður erfið þar sem notendur átta sig ekki á hvaða síðu á að prenta.
- Leitarvélar eiga erfitt með að vísa notendum á alla ramma síðunnar.
- Erfitt að vista bókamerki því rammar eru í raun margar síður.
Ef rammar eru notaðir þarf að tileinka sér ákveðnar vinnureglur. Nauðsynlegt er að lýsa tilgangi hvers ramma með því að nota "title"-eigindið. Vefsíður sem nota tvo ramma, einn fyrir veftré og annan fyrir efni, ættu því að heita eftir því.
Þá þarf einnig að ganga úr skugga um að upplýsingar sem settar eru fram í vöfrum geti nýst notendum sem hafa vafra sem styðja ekki ramma. Það má gera með því að nota "noframe" eigindið.

