3.5 Kerfisvillur

3.5.2 Viðbrögð við villum og tilkynningar

Síður finnist ekki

Ábyrgðarmaður vefsins innan stofnunar þarf að fá tilkynningu um týndar síður. Oftast er þetta gert með því að kerfið bjóði notendum upp á að senda tilkynningu um á vefnum þegar slíkt á sér stað.

Bregðast þarf við tilkynningunni og hafa samband við viðskiptavin og þakka ábendinguna. Þegar niðurstaða finnst er rétt að tilkynna viðskiptavini um úrlausn vandans og senda tengil á hina týndu síðu ef það er mögulegt.

Tæknilegar villur

Tæknilegar villur eða kerfisbilun þarf að tilkynna til þjónustuaðila ef hann er fyrir hendi, annars vefstjóra eða ábyrgðarmanns vefsins. Ganga þarf úr skugga um að í samningum við þjónustuaðila sé brugðist við ábendingum um kerfisbilanir eða villur á markvissan hátt og innan tiltekins tíma.







Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica