3.1 Leiðarkerfi

3.1.1 Leiðarkerfi þarf að vera skýrt og auðvelt í notkun

Uppsetning og góð ráð

Það er gott að tileinka sér ákveðnar vinnureglur þegar leiðarkerfi er sett upp:

  • Gæta skal samræmis í leiðarkerfinu og ekki láta það breytast eða færast á milli staða á undirsíðum.
  • Forðast eins og kostur er að hanna leiðarkerfi með framsetningu myndrænna tengla. Textatenglar eru alltaf betri kostur sérstaklega vegna aðgengismála.
  • Ekki byggja leiðarkerfi sem er háð Javascript-staðlinum því vefurinn þarf að virka fyrir vafra sem ekki styðja staðalinn.
  • Gefið greinilega til kynna hvaða í hvaða vefflokk notendur séu hverju sinni, t.d. með feitletrun á texta í veftré.
  • Heiti flokka í veftré skulu vera stutt og hnitmiðuð.

Aðrar framsetningar

Það er alltaf gott að gefa notendum færi á að leita að efni á annan máta.

  • Atriðaorðaskrá eða A-Z listi yfir efnisflokka vefsins getur verið til hagsbóta fyrir notendur. Þetta gæti hentað stórum og efnismiklum vefjum sérlega vel.
  • Notkun brauðmolaslóða er önnur leið sem sýnir notendum hvar þeir eru staddir á vefnum hverju sinni.

Brauðmolaslóð fyrir þessa síðu sem fjallar um leiðarkerfi vefja er eftirfarandi:

Forsíða > Vefhandbók > 3. Notagildi og viðhald > 3.1 Leiðarkerfi

Notendur geta því áttað sig betur á hvar þeir eru staddir í veftrénu og geta auðveldlega vafrað til baka og á milli flokka. Þessi slóð er yfirleitt sett efst á hverja síðu og er breytileg eftir því hvar notendur eru staddir hverju sinni.

Ítarefni

Eftirfarandi vefslóð er ekki hýst á UT-vefnumGreining rýnihópa með notkun spjalda og umræðna







Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica