3.1 Leiðarkerfi

3.1.5 Notkun markhópatengla

Gæðakönnun

Spurt er hvort efnisflokkun í samræmi við markhópa stofnunarinnar sé til staðar á forsíðu? 

Stigagjöf: 0=nei, 1=já.

Markhópatenglar

Áður en kemur að útfærslu markhópatengla er lykilatriði að finna út hvaða notendahópar eru líklegir til að heimsækja síðuna. Eftirfarandi spurningar má nota til að kortleggja notendahópa.

  • Hverjir eru viðskiptavinir?
  • Hvaða þarfir hafa viðskiptavinir stofnunarinnar?
  • Hvað eru viðskiptavinir líklegir til að gera á vefnum?
  • Hverjir eru væntingar viðskiptavina?

Markhópar eru þeir þeir aðilar (hópar) sem bera sömu þarfir og væntingar til þjónustunnar. Með því að vita hvaða hópar þetta eru verður mögulegt að safna saman upplýsingum sem tilheyra hverjum hópi sérstaklega og aðlagast að þörfum hans.

Á heimasíðu Íbúðalánasjóðs hafa verið skilgreindir þrír notendahópar eins og sjá má á eftirfarandi mynd:

Frá heimasíðu Íbúðalánasjóðs - notkun markhópatengla á forsíðu

Þannig er vefnum skipt upp eftir markhópunum "einstaklingar", "félög" og "markaður/fjárfestar" þar sem leitast er við að mæta þörfum hvers hóps á sinn hátt.

Þar sem notendahópar á vefnum eru skilgreindir út frá þörfum þeirra er mikilvægt að slík greining eigi sér stað með viðtölum við væntanlega notendur, könnunum eða í gegnum sérstaka rýnihópa. Það er aldrei gott að draga ályktanir um væntanlega notendur nema að undangenginni slíkri vinnu.

Á almennum vefjum er líklega algengasta markhópaskiptingin á milli einstaklinga annars vegar og fyrirtækja hins vegar. Þannig er markhópagreining fyrir vefi ekki að snúast að öllu leyti um breytur eins og kyn, aldur og tekjur. Frekar er horft til hvaða þjónustu vefurinn er að veita og hvernig mismunandi hópar muni koma til með að nýta sér þjónustuna.

Markhópavefir

Önnur leið til að þjónusta ákveðinn markhóp er í gegnum sérvefi. Þannig er settur upp sérstakur vefur til hliðar við stofnanavefinn sem veitir ákveðna þjónustu.

Gott dæmi um markhópavef er þjónustuvefur hins opinbera Ísland.is sem er í raun þjónustugátt fyrir almenning.







Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica