3.1 Leiðarkerfi
3.1.9 Leturgerðir
Gæðakönnun
Spurt er hvort samræmi sé í litum á letri, millifyrirsögnum og stafagerð?
Stigagjöf: 0=ekki í samræmi, 1=í samræmi.
Ákveðnar leturgerðir henta betur til lestrar á skjá en prenti. "Verdana", "Georgia" og "Trebuchet" eru dæmi um slíkar leturgerðir.
Til að tryggja samræmi í leturgerðum, litanotkun og stærðum er rétt að nota stílsnið. Þannig verði í raun ómögulegt fyrir vefumsjónarmenn að nota aðrar leturgerði eða liti en skilgreint hefur verið innan vefsins.

