3.7 Leitarvirkni

3.7.1 Leitarvirkni

Opinberir vefir eru oft stórir og erfitt að koma öllu efni fyrir ofarlega í veftré. Leitarvélar eru nærri því undanteknarlaust á opinberum vefjum og auðveldar það notendum að leita eftir tilteknu efni.

Lesa meira
 

3.7.2 Leit alltaf aðgengileg

Hefð er fyrir því að leitarbox sé alltaf aðgengilegt frá öllum síðum svo notendur geti alltaf sent inn leitarstreng án þess að fara frá þeirri síðu sem þeir eru staddir á hverju sinni.

Lesa meira
 

3.7.3 Ítarleit

Með ítarleit er notendum gefinn kostur á að leita eftir orðasamböndum og tíðni orða.

Lesa meira
 

3.7.4 Afmörkuð leit

Á stórum vefjum birtast notendum oft fjöldi leitarniðurstaðna þegar leitað er að tilteknu efni. Af þeim sökum hefur oft verið farin sú leið að notendur geti afmarkað leitina við ákveðna flokka vefsins til að þrengja leit sína enn frekar og fá skýrari niðurstöður. Lesa meira
 






Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica