3.6.1 Tilgangur vefmælinga og túlkun niðurstaðna
Það er eitt að mæla notkun á vefsíðnum og annað mál að túlka og lesa úr niðurstöðunum. Vefmælingar geta gefið stofnunum mjög mikilvægar upplýsingar um hvernig viðskiptavinir nýta sér þjónustuna. Þar má fyrst nefna fjölda heimsókna á vefsíðuna, fjölda endurkoma viðskiptavina og fjölda síðna sem notendur skoða í hverri heimsókn.
Leitarorð
Vefmæling getur gefið stofnunum upplýsingar hvaða leitarorð notendur setja í leitarvél vefsíðunnar. Í tilfelli félags- og tryggingamálaráðuneytis eru oftast leitað eftir upplýsingum um "húsaleigubætur" og "atvinnuleysistryggingar" og gefur það ráðuneytinu ákveðna vísbendingu um hverjar væntingar notenda séu og að tryggja megi að vinsælar síður séu aðgengilegar beint af forsíðu vefsins.
Vinsælar síður
Vefmælingar gefa upplýsingar um hvaða síður er mest sóttar, þ.e. bæði í gegnum ytri leitarvélar, beint í gegnum tengla frá öðrum síðum eða einfaldlega með því notendur heimsæki vefinn beint. Með þessum upplýsingum getur stofnunin áttað sig á hvað megi bæta á vefnum.
Það getur þó verið erfitt að lesa úr einstökum heimsóknartölum úr vefmælingu. Innri heimsóknir geta gefið villandi mynd af heimsóknum. Með innri heimsóknum er átt við starfsmenn stofnunarinnar sem nýta stofnanavefinn oft í starfi sínu eða til að gefa upplýsingar í síma.
Eingöngu er raunhæft að telja ytri heimsóknir þaðan sem viðskiptavinir stofnunar koma og til þess er best að vita IP-tölur stofnunarinnar til að geta dregið notkun starfsmanna frá vefmælingartölum.
Hvaðan koma heimsóknir
Flest vefmælingartól geta gefið vefstjórum upplýsingar um hvernig notendur finna þjónustuna. Það eru þrjár meginleiðir mögulegar fyrir notendur.
-
Beinar heimsóknir með því að slá inn vefslóð í vafra.
-
Heimsóknir í gegnum leitarvélar.
-
Heimsóknir frá öðrum vefsíðum í gegnum tengil.
Vefstjórar geta þannig áttað sig á því hvaðan notendur koma. Ef það kemur í ljós að fáar heimsóknir eru í gegnum leitarvélar þá má grípa til ýmissa ráðstafana til að bæta úr því. Upplýsingar um heimsóknir frá öðrum vefsíðum geta gefið vefstjórum ýmsar áhugaverðar upplýsingar. Einnig er auðvelt að sjá frá hvaða landi notendur koma.
Þó að það eigi sér stað stöðug þróun í vefmælingum er rétt að setja fyrirvara á allar tölur úr þeim. Einstakar IP-tölur gefa oft ekki rétta mynd af heimsóknum enda mörg stór fyrirtæki sem hafa allar vélar innanhúss á einni IP-tölu - þannig geta margar heimsóknir talist sem ein.
Markmiðasetning
Tölur úr vefmælingu má nota í markmiðasetningu. Aukning í heimsóknartölum gefur til kynna að stofnunin sé að gera margt rétt og í kjölfarið er hægt að setja ný og krefjandi markmið um að bæta þjónustuna og auka heimsóknir enn frekar.
Tölur sem sýna minnkandi heimsóknir gefa hins vegar aðra mynd og má oft túlka það sem vísbendingum um að eitthvað mætti betur fara.

Lén og vefmælingar