3.6 Vefmæling
3.6.2 Aðferðir við vefmælingar
Á opinberum vefjum á Íslandi hefur ýmsum aðferðum verið beitt í gegnum tíðina en það er þess virði að nefna tvær áhrifaríkar leiðir sérstaklega.
Teljari.is
Fyrirtækið Modernus býður upp á vefmælingu á Íslandi. Samræmd vefmæling fyrirtækisins hefur þá kosti að auðvelt er að bera saman upplýsingar á milli vefja því engin vefmælingaraðferð er eins. Yfir 150 íslenskir vefir taka þátt í verkefninu og er þjónustan aðgengileg öllum gegn gjaldi.
Google Analytics
Flestir þekkja Google sem vinsælustu leitarvélina á vefnum. Á vegum Google er einnig rekin þjónusta þar sem hægt að skrá vefi í vefmælingu. Þjónustan er aðgengileg öllum án endurgjalds.
Önnur algeng vefmælingartól
- Livestats
- Webtrends
- Awstats
- Webstat
- Netstat
- Xena
- Webalizer
- Statcounter
- Outcome
- Advanced Web Statistics

