Notagildi og innihald
Inngangsorð
Að lokinni þróun, hönnun og uppsetningu þjónustunnar er næsta skref að setja efni á vefinn og tryggja að texta verði haldið við með uppfærslum og öðru nauðsynlegu viðhaldi. Ef um nýja þjónustu er að ræða að hálfu stofnunarinnar er rétt að byrja að huga að skrifum fyrir vefinn snemma í vefþróunarferlinu svo allt sé tilbúið á sama tíma.
Skrif fyrir vefinn geta verið seinleg vinna því oft þurfa margir aðilar að koma að borðinu, stjórnendur og ábyrgðarmenn vefsins þurfa að samþykkja efnistök og framsetningu á efni.
Einnig er fjallað um notagildi vefja. Þjónustuna þarf að vera auðvelt að finna. Gott er að tileinka sér góðar vinnureglur sem tengjast sérstaklega leiðarkerfi síðunnar sem er einn mikilvægasti hluti þjónustunnar til að notendur átti sig á hvernig nálgast eigi ólíka vefflokka og þá þjónustu sem þar er að finna.
Í þessum kafla er fjallað um góð ráð fyrir skrif á vefinn. Einnig um nauðsyn þess að ritstjórn sé markviss og að ábyrgðarmenn séu skilgreindir. Í sérstökum kafla um innihald er fjallað um hvaða grunnupplýsingar sé nauðsynlegt að hafa á vefjum opinberra aðila.

