4.2 Innihald
4.2.1 Staðsetning, sími og netfang
Gæðakönnun
Spurt er hvort hægt sé að sjá hvar stofnunin er til húsa, síma og netfang?
Stigagjöf: 0=nei, 1=já, 2=já í fæti og sýnilegt af öllum síðum.
Ákveðin hefð hefur skapast í uppsetningu á vefsvæðum að setja upplýsingar um staðsetningu stofnunarinnar, síma og netfang neðst á hverja síðu, þannig eru þær alltaf aðgengilegar notendum.
Einnig er skynsamlegt að birta upplýsingar um staðsetningu stofnunarinnar í vefflokki og má sjá slíka flokka víða undir heitinu "Afgreiðsla". Þar má setja inn fleiri upplýsingar en í fót eins og kort sem sýnir staðsetningu stofnunarinnar og frekari upplýsingar um opnunartíma.

