4.2 Innihald
4.2.2 Hlutverk og viðfangsefni
Gæðakönnun
Spurt er hvort hægt sé að sjá hver séu helstu viðfangsefni stofnunar?
Stigagjöf: 0=nei, 1=já.
Stofnanir
Hlutverk eða viðfangsefni stofnunar er iðulega skilgreint í lögum en það er gott ráð að birta samantekt sem er skrifuð á óformlegri hátt en gert er í lögum og reglugerðum, þó er rétt að tengja í lög og reglugerðir ef notendur vilja kynna sér lagagrundvöll stofnunarinnar.
Leitast má eftir að svara eftirfarandi spurningum fyrir notendur:
- Hvaða ráðgjöf eða þjónustu veitir stofnunin almenningi, atvinnulífi eða öðrum stofnununum?
- Sinnir stofnunin rannsóknum og hvernig eru þær aðgengilegar áhugasömum?
- Hvaða sérþekking liggur innan stofnunarinnar?
Sveitarfélög
Hlutverk sveitarfélaga er að veita almenna samfélagsþjónustu. Sjálfsagt er að útlista viðfangsefni og vísa í hvaða stofnanir á vegum sveitarfélagsins sinna því hlutverki að veita þjónustu til íbúa.
- Rekstur leikskóla, tónlistarskóla og grunnskóla.
- Veita íbúum félagsþjónustu.
- Liðveisla til fatlaðra einstaklinga.

Þjónusta Veðurstofu Íslands