4.1.2 Uppfærslur og viðhald
Stöðug endurskoðun
Ábyrgðarmenn vefja bera ábyrgð á að allt efni sé uppfært.
Eldra efni á opinberum vefjum
Það er nauðsynlegt að skipuleggja efni á þann máta að notendur átti sig á hvaða upplýsingar séu réttar og í gildi hverju sinni.
Leitarvélar geta verið varasamar og leitt notendur í efni sem á ekki lengur við. Þetta á sérstaklega við um gömul PDF-skjöl og ytri skrár í skjalasafni. Þess vegna er gott að taka þau úr birtingu eða merkja þau rækilega og tilkynna notendum að þau eigi ekki lengur við. Þetta á einnig við um efni sem birt er í vefsíðum á netinu.
Upplýsingar um að efni eigi ekki lengur við þarf að vera mjög áberandi og tilkynnina slíkt efst á þeim síðum. Það er mikilvægt að þessar upplýsingar komi fram á öllum vefsíðum sem slíkt á við því notendur koma oft inn á vefsíður beint á undirsíðu og taka því ekki eftir tilkynningum sem settar eru ofar í veftré.

