4.1 Ritstjórn
4.1.3 Forsíða vefsins
Á forsíðunni þarf að koma mjög skýrt fram nafn stofnunar eða hvaða ábyrgðaraðilar standa að baki vefþjónustunni. Forsíðan er inngönguleið inn á allar aðrar vefsíður. Eftirfarandi atriði er gott að hafa í huga þegar efni er valið á forsíðu:
- Á forsíðu er gott ráð að setja stuttan texta þar sem viðskiptavinir eru upplýstir um tilgang þjónustunnar.
- Nýjasta efni tekið saman - hentar einstaklingum sem koma oft á vefinn.
- Hvað er efst á baugi hverju sinni, t.d. í ákveðnum málaflokkum og hvað þykir líklega að fólk sæki.

