4.1.4 Opnir gagnagrunnar
Opin gögn
Í könnuninni er spurt hvort hægt sé að fletta upp eða sækja gögn í skráargeymslur stofnunarinnar í gegnum vefviðmót, skv hugmyndum um opin gögn?
Stig: 0=nei, 1=já, að hluta, 2=já.
Þegar því er velt fyrir sér hvort opna eigi gagnagrunna út á vefinn þarf að meta hvert tilvik sérstaklega. Ef vafamál er hvort hægt sé að misnota gögn úr gagnagrunninn er ráðlegt að leita eftir áliti frá hagsmunaðilum og með aðstoð frá Persónuvernd.
Opnir gagnagrunnar geta nýst í þjóðarhag, meðal annars í rannsóknir og fræðistörf. Einnig fyrir áhugasama. Hugmyndafræðin snýst um það að gögn sem eiga vera öllum opinber og aðgengileg séu það í raun og til þess má nýta vefinn.
Athugið hvort stofnunin hafi gagnagrunna á sínum snærum sem ættu að vera opinberir og aðgengilegir öllum.
Ýmsir opnir gagnagrunnar á vegum opinbera aðila
- Gagnagrunnur Hagstofu Íslands veitir öllum áhugasömum lýðfræðilegar upplýsingar og ýmsa aðra tölfræði.
- Lagasafn Alþingis er opin gagnagrunnur aðgengilegur á vef Alþingis.
- Loftfaraskrá Flugmálastjórnar er með skrá yfir öll loftför sem skráð eru á Íslandi.

Opin gögn á Íslandi