4.3 Skrif á vefinn

4.3.1 Hvernig á að skrifa fyrir vefinn?

Það er tímafrekt að skrifa góðan og auðskiljanlegan texta fyrir vefsvæði. Eftirfarandi punktar eru samantekt á góðum ráðum sem gott er að höfundar hafi í huga.

Fyrir hvern er skrifað?

  • Hver er markhópurinn - setjið ykkur í spor þess sem mun koma til með að nýta sér þjónustuna og leita eftir efni á vefinn.
  • Nýtið ykkur upplýsingar úr vefmælingum í samvinnu við vefstjóra eða þjónustuaðila til að átta ykkur á hvaða efni notendur eru að leita að.
  • Skrifið kjarnyrtan texta og forðist málalengingar, haldið kommusetningum í lágmarki og forðist notkun skammstafana. Yfirleitt er auðvelt að setja punkt þar sem margir velja að setja kommu.
  • Miðið við setningar upp á 15-20 orð.

Orðaval

  • Opinberir aðilar starfa eftir settum lögum og reglugerðum. Forðist að nota formleg orð sem algeng eru úr lagaumhverfinu og eru starfsfólki stofnana eðlislæg en framandi fyrir notendur vefsvæða.
  • Gætið að samræmi í orðanotkun á öllu vefsvæðina.
  • Notið tölustafi frekar en bókstafi þegar tölum og númerum er komið á framfæri. Dæmi: 10 í stað tíu.

Ítarefni

Eftirfarandi vefslóð er ekki hýst á UT-vefnumVerklagsreglur Háskóla Íslands

Eftirfarandi vefslóð er ekki hýst á UT-vefnum10 góð ráð fyrir skrif á vefsvæði (á ensku)







Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica