2.1.1 Hönnunarferillinn
Val á samstarfsaðilum
Oftast er hönnun úthýst til grafískra hönnuða sem hafa sérhæft sig í hönnun vefssetra. Þeir starfa iðulega á auglýsingastofum. Einnig er algengt að þjónustuaðilar sem samið hefur verið við um vefumsjónarkerfi hafi á sínum snærum grafíska hönnuði sem geta aðstoðað við hönnun útlits samhliða uppsetningu á vefnum.
Fyrstu skref - hugmyndavinna
Hvort sem leitað er samstarfs við auglýsingastofur, hugbúnaðarhús eða sjálfstætt starfandi einstaklinga er næsta skref að hefja hugmyndavinnu. Í slíku ferli hlusta hönnuðir á óskir stofnunarinnar og koma með tillögur að útfærslu, slíkt er jafnvel gert með skissum. Í þessu ferli eru einnig lögð drög að ljósmyndun ef þess gerist þörf.
Rýni
Þegar liggja fyrir drög að útliti sem eru ekki að fullu útfærð er rétt að staldra við og kalla eftir athugasemdum frá öðrum aðilum innan stofnunarinnar, bæði stjórnendum og starfsmönnum. Einnig ef þess er kostur er gott að fá væntanlega notendur til að rýna útlitið og koma með athugasemdir. Athugasemdir notenda gætu varðað tillögu að leiðarkerfi vefsins, nytsemi hans og aðgengileika.
Aðgengi
Hönnuðir þurfa að huga að ýmsu er varðar aðgengi fatlaðra í sinni vinnu. Ákveðnar leikreglur eru í gildi til að tryggja gott aðgengi blindra og sjónskertra og áður en kemur að nánari útfærslu útlits er nauðsynlegt að ganga úr skugga um að slíkt aðgengi sé tryggt.
Upplýsingar um aðgengi má finna í kafla 3.2.
Útfærsla útlits
Eftir ítarlega rýni og umfjöllun um útlitsdrögin er væntanlegt útlit tekið lengra. Reynt er eftir fremsta megni að taka tillit til athugasemda notenda. Hönnuður klára útfærslu útlits og gerir þau tilbúin til vefunar.
Uppsetning og vefun
Að lokum skilar hönnuður lokaútliti vefsins til forritara hjá þjónustuaðila stofnunarinnar sem vefar það setur upp í því vefumsjónarkerfi sem ætlunin er að nota.

