2.4 Prófanir

2.4.2 Notendaprófanir

Fengnir eru einstaklingar sem taldir eru endurspegla væntanlegan notendahóp til að prófa vefina og veita endurgjöf. Sjálfsagt er að greiða einstaklingum sem sýna áhuga á að aðstoða við prófanirnar.

Nauðsynlegt er að undirbúa notendaprófanir vel og velja verkefni fyrir prófendur sem endurspegla virkni og þá þjónustu sem ætlunin er að veita.

Veljið verkefni fyrir prófendur

Biðjið prófendur um að leita eftir ákveðnum upplýsingum og fylgist með hvernig þeim gengur. Einnig er gott að biðja prófendur um að lýsa hugsunarferli sínu á meðan prófunum stendur til að fá betri mynd af viðtökukröfum þeirra.

Ræðið við prófendur

Eftir prófanir er gott ráð að ræða betur við prófendur og spyrja hvernig þeim lítist á þjónustuna og hvað mætti betur fara almennt. Var væntingum þeirra að fullu mætt eða er þörf á úrbótum?

Ýmis ráðgjafafyrirtæki og hugbúnaðarhús á Íslandi hafa sérhæft sig í notendaprófunum og sjálfsagt er að leita eftir þeirra þjónustu.

Hvenær á að fara í notendaprófanir?

Ráðast má í notendaprófanir á hvaða stigi vefþróunarferilsins. Slíkar prófanir henta fullgerðum velum jafnt og nýjum sem eru í þróun. Mælt er þó með því að sérstök áhersla sé lögð á notendaprófanir áður en vefurinn er fullgerður til að geta brugðist snemma við ábendingum notenda um hvað betur megi fara.

Ítarefni

Eftirfarandi vefslóð er ekki hýst á UT-vefnum8 góð ráð fyrir notendaprófanir







Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica