2.3 Rafræn þjónusta

2.3.1 Grunnþjónusta

Gæðakönnun - grunnþjónusta

Vefur er til staðar og þar má finna almennar upplýsingar um stofnunina.

Stigagjöf: 25 stig.

Í skilgreiningu á grunnþjónustu felst að til staðar sé vefur með helstu upplýsingum um stofnunina, hlutverk hennar og þjónustu. Enga gagnvirka rafræna þjónustu er að finna á vefnum.

Væntingar notenda til þjónustustofnana eru sífellt að aukast samhliða tækniþróun og aukinni bandbreiddsnotkun. Samkvæmt gæðakönnnun forsætisráðuneytis og Sambands íslenskra sveitarfélaga árið 2007 kemur fram að ein ríkisstofnun og 13 sveitarfélög hafa ekki vef. Langflestir opinberir vefir tilheyra næsta stigi þjónustu þar sem boðið er upp á þjónustu sem flýtir afgreiðslu.

Næstu skref í þjónustu

Æskilegt er að stofnanir sem hafa vefi sem falla undir fyrsta stig nái að nýta sér tæknina enn frekar til að ná fram aukinni þjónustu til notenda. Mikilvægt er þó að tryggja að væntanlegir notendur þjónustunnar hafi hag af þeim fjárfestingum.







Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica