2.3 Rafræn þjónusta

2.3.2 Þjónusta sem flýtir afgreiðslu

Gæðakönnun - afgreiðsluflýtir

Vefur með þjónustu sem flýtir afgreiðslu.

Stigagjöf: 50 stig.

Langflestir opinberir vefir á Íslandi (79% - 2007) ná þessu þjónustustigi með því að birta á vefjum sínum eyðublöð sem hægt er að prenta út, fyrirspurnarform, leitarvirkni í upplýsingagrunni og skráningu á póstlista.

Hvernig má ná þessu þjónustustigi?

Tiltölulega auðvelt er að ná þessu stigi. Hér er ekki um að ræða gagnvirka þjónusta heldur leitast við að tryggja upplýsingaflæði til notenda með eftirfarandi áherslum:

  • Eyðublöð stofnunar má prenta út af vefnum.
  • Notendur geta sent inn fyrirspurnir til stofnunar í gegnum sérstakt fyrirspurnarform.
  • Boðið er upp á leitarvirkni í upplýsingagrunni.
  • Skráning á póstlista.
  • Reiknivélar.
  • Skoðanakannanir.
  • Hægt að persónusníða síður.

Næstu skref í þjónustu

Æskilegt er að stofnanir sem hafa vefi á öðru stigi stefni lengri og nái að nýta sér tæknina til að ná fram aukinni þjónustu til notenda. Mikilvægt er þó að tryggja að væntanlegir notendur þjónustunnar hafi hag af þeim fjárfestingum.







Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica