2.3 Rafræn þjónusta

2.3.4 Þjónusta sem felur í sér fyllilega rafræna málsmeðferð, ákvarðanatöku og skil niðurstaðna

Gæðakönnun - rafræn málsmeðferð

Á vefnum er þjónusta sem felur í sér fyllilega rafræna málsmeðferð, ákvarðanatöku og skil niðurstaðna.

Stigagjöf: 100 stig.

Hvernig má ná þessu þjónustustigi?

Til að ná þessu þjónustustigi þarf að hanna rafræna ferla og tryggja að upplýsingar í gegnum vefinn komist til réttra aðila innan stofnunarinnar.

  • Oft er notast við einhvers konar innskráningarferli til að bera kennsl á notendur.
  • Eyðublöð er hægt að skila inn rafrænt í gegnum vefinn.
  • Notendur geta tekið þátt í umræðum á spjallborðum.
  • Vefverslun.

Alltaf þarf að bera kennsl á notendur áður en persónubundnar upplýsingar eru sendar þeim.

Í þessu felst að notendur þurfa að auðkenna sig með innskráningu eða notkun rafrænna skilríkja. Notendur fá einstaklingsmiðaðan aðgang, óska eftir þjónustu og sækja upplýsingar um málsmeðferð og niðurstöður í gegnum vefinn.

Þarfagreining

Ef markmiðið með verkefninu er að gera ferla stofnunarinnar sjálfvirka og innleiða hátt þjónustustig rafrænnar þjónustu þarf sérstök þarfagreining að innihalda greiningu á innra verklagi og lýsingu á viðskiptaferlum og þar með fæst yfirlit yfir hvaða þörf er á tengslum milli núverandi kerfa. Þarfagreining getur þannig verið skilvirk leið til að afla tilboða í nýtt upplýsingakerfi fyrir stofnunina eða sérforritun.

Ítarefni







Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica