2.5.4 Umræðutorg
Tiltölulega einfalt er að setja upp umræðutorg. Nokkrir hugbúnaðarpakkar til þess eru aðgengilegir án endurgjalds eða sem ódýr viðbót við mörg vefumsjónarkerfi.
Þó að umræðutorg sé einfalt í uppsetningu krefst það mikils af þeim upp á það bjóða, fylgjast þarf vel með þeirri umræðu sem fer af stað og gæta þess að einstaklingar notfæri sér vettvanginn ekki til eigin hagsmuna.
Þá þarf að hafa í huga að sá hópur einstaklinga sem sækir í umræðutorg á netinu getur verið nokkuð einsleitur og þær skoðanir sem þar koma fram endurspegla ekki á öruggan máta skoðun samfélagsins í heild.
Rétt er að óska eftir því að einstaklingar sem taka þátt í umræðum á netinu skrifi alltaf undir fullu nafni.
Tryggja þarf að sú umræða sem skapast á spjalltorgum skili sér til réttra aðila, annað hvort í heild sinni eða með samantekt úr umræðunum.

